Óumbeðið sjálfstæði Seðlabanka Ólafur Þ. Stephensen skrifar 15. febrúar 2014 11:23 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur í annað skiptið á stuttum tíma stokkið upp á nef sér gagnvart Seðlabankanum, að því er virðist af því að Seðlabankinn sinnir sínu lögbundna hlutverki. Í nóvember létu forsvarsmenn bankans í ljósi ákveðnar áhyggjur af stærsta kosningamáli flokks forsætisráðherrans, róttækustu skuldaleiðréttingu í heimi. Ráðherrann brást reiður við, kallaði nálgun Seðlabankamanna "sérkennilega" og sakaði þá um að ástunda fremur pólitík en hagstjórn. Í vikunni birti svo Seðlabankinn mat sitt á efnahagsáhrifum skuldalækkunarinnar. Bankinn telur að hún muni auka einkaneyzlu og innflutning, draga úr þjóðhagslegum sparnaði og viðskiptaafgangi og stuðla að lægra gengi krónunnar en ella. Þar með geti aðgerðirnar ýtt undir verðbólgu og útheimti harðara aðhald peningastefnunnar. Þetta mat kemur ekki á óvart. Það fer hins vegar ógurlega í taugarnar á forsætisráðherranum að Seðlabankinn skuli leyfa sér að tala svona um uppáhaldskosningamálið hans. Hann furðaði sig á því á Viðskiptaþingi á miðvikudaginn að Seðlabankinn færi "óumbeðinn" í þessa greiningu, ekki sízt af því að hann ætti eftir að skila af sér greiningu á greiðslujöfnuði Íslands, sem ríkisstjórnin hefði beðið um fyrir nokkru. Talsmaður Seðlabankans stakk snyrtilega upp í forsætisráðherrann í viðtali hér í blaðinu í gær; benti á að bankinn nyti sjálfstæðis í því hlutverki sínu að passa upp á stöðugt verðlag í landinu og óhjákvæmilega þyrfti að greina efnahagsáhrif jafnumfangsmikilla aðgerða stjórnvalda. Þessi vinna væri jafnframt forsenda þess að hægt væri að fara í greiðslujöfnuðargreininguna. Hnútukast Sigmundar Davíðs í Seðlabankann er ekki gott fyrir traust á efnahagslífinu. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, sagði í Fréttablaðinu í gær að hann vissi ekki dæmi þess að forsætisráðherrar annarra ríkja brygðust þannig við gagnvart seðlabönkum. Erlendir greinendur sæju skortinn á trausti stjórnvalda í garð Seðlabankans og það veikti tiltrú þeirra á að hér yrði hægt að koma á stöðugleika. Sjálfstæði Seðlabankans er ekki fundið upp í bankanum. Það er ákvörðun Alþingis, að grunni frá 2001, í valdatíð Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Rökin eru meðal annars að þannig séu stöðugleiki og fagmennska við stjórn peningamála betur tryggð en ef pólitíkusar eru með puttana í henni. Seðlabankinn gegnir líka sjálfstæðu greiningarhlutverki og þar með aðhaldshlutverki gagnvart ríkisstjórninni. Rifja má upp að síðast þegar þingið hnykkti á faglegu sjálfstæði bankans, meðal annars með stofnun peningastefnunefndar, studdi allur þingflokkur Framsóknar þá breytingu. Forsætisráðherrann verður að sætta sig við að Seðlabankinn gerir og segir ekki alltaf það sem honum þóknast. Kannski þarf hann líka að rifja upp það sem honum hefur orðið tíðrætt um; að það sé hægt að komast að skynsamlegustu niðurstöðunni með rökræðum. Það útheimtir að menn hlusti á rök sem þeir eru ekki endilega sammála og útskýri þá sína hlið mála betur, í staðinn fyrir að fara í fýlu og skamma þá sem eru á annarri skoðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Sjá meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur í annað skiptið á stuttum tíma stokkið upp á nef sér gagnvart Seðlabankanum, að því er virðist af því að Seðlabankinn sinnir sínu lögbundna hlutverki. Í nóvember létu forsvarsmenn bankans í ljósi ákveðnar áhyggjur af stærsta kosningamáli flokks forsætisráðherrans, róttækustu skuldaleiðréttingu í heimi. Ráðherrann brást reiður við, kallaði nálgun Seðlabankamanna "sérkennilega" og sakaði þá um að ástunda fremur pólitík en hagstjórn. Í vikunni birti svo Seðlabankinn mat sitt á efnahagsáhrifum skuldalækkunarinnar. Bankinn telur að hún muni auka einkaneyzlu og innflutning, draga úr þjóðhagslegum sparnaði og viðskiptaafgangi og stuðla að lægra gengi krónunnar en ella. Þar með geti aðgerðirnar ýtt undir verðbólgu og útheimti harðara aðhald peningastefnunnar. Þetta mat kemur ekki á óvart. Það fer hins vegar ógurlega í taugarnar á forsætisráðherranum að Seðlabankinn skuli leyfa sér að tala svona um uppáhaldskosningamálið hans. Hann furðaði sig á því á Viðskiptaþingi á miðvikudaginn að Seðlabankinn færi "óumbeðinn" í þessa greiningu, ekki sízt af því að hann ætti eftir að skila af sér greiningu á greiðslujöfnuði Íslands, sem ríkisstjórnin hefði beðið um fyrir nokkru. Talsmaður Seðlabankans stakk snyrtilega upp í forsætisráðherrann í viðtali hér í blaðinu í gær; benti á að bankinn nyti sjálfstæðis í því hlutverki sínu að passa upp á stöðugt verðlag í landinu og óhjákvæmilega þyrfti að greina efnahagsáhrif jafnumfangsmikilla aðgerða stjórnvalda. Þessi vinna væri jafnframt forsenda þess að hægt væri að fara í greiðslujöfnuðargreininguna. Hnútukast Sigmundar Davíðs í Seðlabankann er ekki gott fyrir traust á efnahagslífinu. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, sagði í Fréttablaðinu í gær að hann vissi ekki dæmi þess að forsætisráðherrar annarra ríkja brygðust þannig við gagnvart seðlabönkum. Erlendir greinendur sæju skortinn á trausti stjórnvalda í garð Seðlabankans og það veikti tiltrú þeirra á að hér yrði hægt að koma á stöðugleika. Sjálfstæði Seðlabankans er ekki fundið upp í bankanum. Það er ákvörðun Alþingis, að grunni frá 2001, í valdatíð Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Rökin eru meðal annars að þannig séu stöðugleiki og fagmennska við stjórn peningamála betur tryggð en ef pólitíkusar eru með puttana í henni. Seðlabankinn gegnir líka sjálfstæðu greiningarhlutverki og þar með aðhaldshlutverki gagnvart ríkisstjórninni. Rifja má upp að síðast þegar þingið hnykkti á faglegu sjálfstæði bankans, meðal annars með stofnun peningastefnunefndar, studdi allur þingflokkur Framsóknar þá breytingu. Forsætisráðherrann verður að sætta sig við að Seðlabankinn gerir og segir ekki alltaf það sem honum þóknast. Kannski þarf hann líka að rifja upp það sem honum hefur orðið tíðrætt um; að það sé hægt að komast að skynsamlegustu niðurstöðunni með rökræðum. Það útheimtir að menn hlusti á rök sem þeir eru ekki endilega sammála og útskýri þá sína hlið mála betur, í staðinn fyrir að fara í fýlu og skamma þá sem eru á annarri skoðun.
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun