Skoðun

Fyrir 20 árum varð til Reykjavíkurlisti…

Sigrún Magnúsdóttir skrifar
Fyrir tuttugu árum síðan var mikið skeggrætt og unnið varðandi framboðsmál til borgarstjórnar. Flokkarnir héldu fundi saman og einnig hver í sínum ranni. Nánast á hverjum degi var umfjöllun í Morgunblaðinu um gang mála. Um miðjan janúar 1994 var tilkynnt að flokkarnir, sem voru í stjórnarandstöðu við Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, hefðu ákveðið að bjóða fram sameiginlegan framboðslista til borgarstjórnar.

Reykjavíkurlistinn var skapaður af Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og samtökum um Kvennalista á jafnréttisgrunni. Einn aðalsamningamaður framsóknarmanna var Valdimar Kr. Jónsson prófessor. Hann var einlægur stuðningsmaður þess að koma á sameiginlegum framboðslista og vann mikið og gott starf með fulltrúum hinna flokkanna.

Í mínum huga er sennilega sá útgangspunktur í starfinu sem mest situr eftir – að yfir vötnum sveif andblær nýrrar hugsunar varðandi jafnvægi/jafnrétti í samskiptum karla og kvenna sem og milli flokka. Konur voru þar ekki síður ráðandi en karlar. Önnur nýjung var sú að setja borgarstjóraefnið í áttunda sætið. Í heild var listinn skipaður vönduðu samhentu fólki, sem hafði reynslu af samstarfi í borgarstjórn.

Starfið í R-listanum og árangurinn er mér hugleikinn. Mér hefur stundum sárnað þegar fulltrúar samstarfsflokkanna vilja í seinni tíð alfarið eigna sér framboðið og ganga svo langt að setja samasemmerki á milli Reykjavíkurlistans og flokks sem varð til síðar á landsvísu. Reyndar raskaðist hið góða samstarf og jafnvægi sem var innan listans einmitt við þá gjörð.

Framsóknarmenn eiga, ekki síður en aðrir, þátt í samstöðu listans sem og uppbyggingunni í þeim málaflokkum sem við settum á oddinn í kosningabaráttunni 1994 um skóla og leikskóla.

Starf í sveitarstjórn er afar gefandi og skemmtilegt. Þetta er starf sem ekki síður á að höfða til kvenna að mínu mati. Ég hvet því konur til að taka þátt í mótun nærumhverfisins og gefa kost á sér á lista til sveitarstjórnar. Reynsla af starfi í sveitarstjórn kemur til góða sama hvað fólk tekur sér fyrir hendur síðar á lífsleiðinni. Sennilega er sveitarstjórnarþátttaka einn besti skóli sem unnt er að sækja í mannlegum samskiptum sem og þekkingu á mótun samfélags.




Skoðun

Skoðun

„Ég kýs að kjósa ekki“

Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar

Skoðun

Samfélagsgróðurhús

Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar

Sjá meira


×