Norrænt samstarf um jafnrétti kynjanna í 40 ár Eygló Harðardóttir skrifar 19. ágúst 2014 07:00 Árið 1974 hófst formlegt samstarf á sviði jafnréttismála á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Ákvörðun þessi hefur án efa átt sinn þátt í að kynjajafnrétti mælist hvergi meira en á Norðurlöndunum. Samstarfið hefur aukið þekkingu okkar, samráð og samvinnu sem hefur skilað árangri og fært okkur nær markmiðinu um norræn samfélög réttlætis og lýðræðis.Ráðstefna í Hörpu Ísland fer í ár með formennsku í starfi norrænu ráðherranefndarinnar og það kemur í okkar hlut að boða til hátíðarráðstefnu í tilefni afmælisins. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu þann 26. ágúst næstkomandi og er markmið hennar að fjalla um árangur og framtíðarmarkmið samstarfsins. Þar verður meðal annars lögð áhersla á jafnrétti á vinnumarkaði, menntun og aukna þátttöku karla og drengja í jafnréttisstarfi. Um þessar mundir er fagnað aldarafmæli kosningaréttar kvenna á Norðurlöndum og af því tilefni verður hugað að stöðu lýðræðis með hliðsjón af stjórnmálaþátttöku kvenna. Ráðstefnan er öllum opin.Miklar breytingar orðið Á þeim 40 árum sem liðin eru frá upphafi norræns samstarfs hafa miklar breytingar átt sér stað. Menntun og atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist gríðarlega, konum hefur fjölgað verulega á þjóðþingum, í ríkisstjórnum og í sveitarstjórnarmálum þar sem karlar voru áður allsráðandi. Innan fjölskyldna hafa orðið breytingar á verkaskiptingu, ekki síst hefur feðrahlutverkið breyst með auknum réttindum feðra til fæðingar- og foreldraorlofs. Á þessum tíma hafa Norðurlöndin tekið forystu í alþjóðlegum samanburði og skipað sér í efstu sæti lista Alþjóðaefnahagsráðsins sem árlega mælir árangur ríkja á sviði jafnréttismála. Ný mál hafa verið sett á dagskrá stjórnmálanna ekki síst baráttan gegn kynbundnu ofbeldi, samstarf við Eystrasaltslöndin eftir hrun járntjaldsins og nú síðast þær áskoranir sem felast í loftlagsbreytingum og þeim vaxandi áhuga sem beinist að norðurslóðum. Mikilvægt er að hafa kynjasjónarmið í huga við stefnumótun og framkvæmdir í þessum málum því þau hafa mismunandi áhrif á líf kvenna og karla.Þurfum að halda vöku okkar Norðurlöndin hafa farið mismunandi leiðir í jafnréttisstarfi með mismunandi stofnanauppbyggingu og aðgerðum en það sem mestu máli skiptir er að við höfum öll náð árangri. Mikilvægt er þó að hafa hugfast að þessi árangur kom ekki af sjálfu sér heldur er hann afrakstur mikillar vinnu og baráttu kvennahreyfinga fyrir jafnrétti kynjanna. Við þurfum að halda vöku okkar til að ekki verði bakslag. Við stöndum enn frammi fyrir miklum áskorunum og erfiðum verkefnum. Við munum mæta þessum áskorunum og halda áfram að byggja upp norræn samfélög jafnréttis og lýðræðis. Samfélög þar sem konur og karlar njóta sömu tækifæra og jafnrar stöðu á vinnumarkaði og samfélög þar sem allir leggjast á eitt um að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Við þurfum að auka þekkingu á því að jafnrétti kynja er ekki eingöngu réttlætis- og lýðræðismál heldur er það einnig efnahagsleg nauðsyn og grundvöllur norrænna velferðarsamfélaga. Ryðja hindrunum úr vegiMikil atvinnuþátttaka kvenna er einn af hornsteinum hagvaxtar og velferðar og við eigum að halda áfram að ryðja úr vegi jafnt formlegum sem óformlegum hindrunum fyrir jafnri þátttöku kynjanna á öllum sviðum. Jafnréttismál eru ekki afmarkað svið heldur snerta þau líf okkar allra. Upplýsingar og þekking á stöðu mála eru undirstaða þess að við getum haldið áfram að vinna að markmiðum opinberrar jafnréttisstefnu. Norræn samvinna stendur traustum fótum. Með vináttu okkar, rótgrónu samstarfi og sameiginlegum hugsjónum og hagsmunum náum við árangri. Megi afmælisárið og hátíðarráðstefnan verða okkur öllum hvatning til dáða og frekari samvinnu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira