Viðskipti innlent

Nýherji selur danska félagið Dansupport

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Söluverð Dansupport er trúnaðarmál.
Söluverð Dansupport er trúnaðarmál. Mynd/Nýherji
Nýherji hf. hefur selt danska félagið Dansupport A/S til fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Jansson Kommunikation A/S.

Dansupport er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni sem sérhæfir sig í innviðum upplýsingakerfa, samþættum samskiptum (Unified Communications) og þróun á lausnum fyrir IP símtækni. Um 30 manns unnu hjá félaginu á árinu 2013.

Félagið var stofnað árið 1987 og varð hluti af Nýherjasamstæðunni árið 2007.

Í tilkynningu frá Nýherja segir að tekjur Dansupport á árinu 2012 hafi verið um 50 milljónir danskra króna. Söluverð Dansupport er trúnaðarmál.

Þá segir að salan muni hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrar- og efnahagsreiknings Nýherja hf. fyrir árið 2013, en mun treysta lausafjárstöðu félagsins og skerpa áherslur í starfsemi þess.

Haft er eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja í tilkynningunni þar sem hann segir að á síðustu mánuðum hafi verið unnið að stefnumótun og endurskilgreiningu á megináhreslum Nýherja samstæðunnar. Markmiðið með slíkri vinnu sé að skapa skarpari sýn á grunnstoðir félagsins og þá markaði, viðskiptavini og lausnir sem áhersla verður lögð á til næstu ára.

Finnur segir sölu á Dansupport í takt við breyttar áherslur sem vænta má í starfsemi Nýherja, sem munu miða að því að efla þjónustu- og lausnaframboð á sviði upplýsingatækni á íslenskum fyrirtækjamarkaði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×