Opið bréf til innanríkisráðherra, ítrekun Björn Guðmundsson skrifar 15. janúar 2014 06:00 Innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir.Í lok október birtist þér opið bréf á síðum þessa blaðs þar sem undirritaður spurði þig nokkurra spurninga. Svör hafa ekki borist. Skömmu síðar talaðir þú um kristilegt siðgæði og kærleika á Kirkjuþingi. Á leið þinni upp metorðastigann varð þér tíðrætt um mikilvægi samræðu. Um nýliðin áramót strengdir þú þess heit að leggja þig fram og minna þig reglulega á þau forréttindi að fá að vinna fyrir fólkið í landinu. Það að þú skulir ekki svara bréfi mínu er í mótsögn við þetta. Spurningar mínar snerust um náttúruverndarmál og sumar þeirra voru þess eðlis að ég fæ ekki betur séð en að þér beri lagaleg skylda til að svara þeim. Sem ráðherra dómsmála á Íslandi gætir þú verið komin á hálan ís gerir þú það ekki. Ég bendi þér á að kynna þér upplýsingalög í þágu almennings. Lög um upplýsingarétt um umhverfismál byggja á tilskipun Evrópusambandsins og eru hluti af EES-samningnum hvort sem þér líkar betur eða verr. Þeim er ætlað að stuðla að sterkari vitund um málefni á umhverfissviði, frjálsum skoðanaskiptum og aukinni þátttöku almennings þegar verið er að móta ákvarðanir um umhverfismál.Hvet þig til að svara Ég hvet þig til að svara spurningum mínum. Þær snerust m.a. um olíumengun á vatnsverndarsvæði höfuðborgarinnar og fyrirhugaðar framkvæmdir við Þríhnúkagíg sem OR og fleiri ábyrgir aðilar hafa lýst sig andvíga vegna mengunarhættu og óafturkræfra náttúruspjalla. Þarna eru í húfi hagsmunir stórs hluta almennings á Íslandi gagnvart gróðahyggju nokkurra manna á hinn bóginn. Stendur þú með almenningi í samræmi við áramótaheit þitt eða gengur þú erinda auðvalds sem engu eirir þegar náttúra landsins er annars vegar? Skilur þú ekki mikilvægi þess að halda drykkjarvatni stórs hluta þjóðarinnar óspilltu? Sýndu fram á að tal þitt um kristilegt siðgæði, kærleika og samræðu sé ekki orðin tóm. Við skulum ekki flækja málin með tali um góða siði. Og ráðherra dómsmála má ekki dreifa fræjum efasemda um eigin löghlýðni. Gangi þér vel, Hanna Birna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir.Í lok október birtist þér opið bréf á síðum þessa blaðs þar sem undirritaður spurði þig nokkurra spurninga. Svör hafa ekki borist. Skömmu síðar talaðir þú um kristilegt siðgæði og kærleika á Kirkjuþingi. Á leið þinni upp metorðastigann varð þér tíðrætt um mikilvægi samræðu. Um nýliðin áramót strengdir þú þess heit að leggja þig fram og minna þig reglulega á þau forréttindi að fá að vinna fyrir fólkið í landinu. Það að þú skulir ekki svara bréfi mínu er í mótsögn við þetta. Spurningar mínar snerust um náttúruverndarmál og sumar þeirra voru þess eðlis að ég fæ ekki betur séð en að þér beri lagaleg skylda til að svara þeim. Sem ráðherra dómsmála á Íslandi gætir þú verið komin á hálan ís gerir þú það ekki. Ég bendi þér á að kynna þér upplýsingalög í þágu almennings. Lög um upplýsingarétt um umhverfismál byggja á tilskipun Evrópusambandsins og eru hluti af EES-samningnum hvort sem þér líkar betur eða verr. Þeim er ætlað að stuðla að sterkari vitund um málefni á umhverfissviði, frjálsum skoðanaskiptum og aukinni þátttöku almennings þegar verið er að móta ákvarðanir um umhverfismál.Hvet þig til að svara Ég hvet þig til að svara spurningum mínum. Þær snerust m.a. um olíumengun á vatnsverndarsvæði höfuðborgarinnar og fyrirhugaðar framkvæmdir við Þríhnúkagíg sem OR og fleiri ábyrgir aðilar hafa lýst sig andvíga vegna mengunarhættu og óafturkræfra náttúruspjalla. Þarna eru í húfi hagsmunir stórs hluta almennings á Íslandi gagnvart gróðahyggju nokkurra manna á hinn bóginn. Stendur þú með almenningi í samræmi við áramótaheit þitt eða gengur þú erinda auðvalds sem engu eirir þegar náttúra landsins er annars vegar? Skilur þú ekki mikilvægi þess að halda drykkjarvatni stórs hluta þjóðarinnar óspilltu? Sýndu fram á að tal þitt um kristilegt siðgæði, kærleika og samræðu sé ekki orðin tóm. Við skulum ekki flækja málin með tali um góða siði. Og ráðherra dómsmála má ekki dreifa fræjum efasemda um eigin löghlýðni. Gangi þér vel, Hanna Birna.
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun