Forseti Íslands og sæstrengur til Bretlands Örn Helgason skrifar 21. nóvember 2013 06:00 Forseti Íslands hélt ræðu á orkuráðstefnu Bresk-íslenska viðskiptaráðsins og Bloomberg fréttaveitunnar í Lundúnum í síðastliðinni viku. Þar sagði hann m.a. „að Evrópubúar verði á næstu árum að gera upp við sig hvernig þeir ætli að nýta sér þá miklu hreinu orku sem finnist á norðurslóðum. Rafstrengur frá Íslandi til Bretlands sé mjög áhugaverður fjárfestingarkostur og hann segist verða var við mikinn áhuga fjárfesta.“ En hversu mikil er þessi orka? Á síðasta ári framleiddi Landsvirkjun alls um 12 Twst (terawattstundir, en orðið tera stendur fyrir milljón sinnum milljón). Drjúgur hluti orkunnar er þegar seldur í stóriðju eins og vel er þekkt. Samkvæmt ítarlegri vinnu í tengslum við rammaáætlun er talið að annað eins megi virkja þegar allt er talið. Hvernig hljómar þessi tala í tengslum við orkunotkun Evrópubúa? Á Bretlandi er árleg raforkunotkun um þessar mundir um 360 Twst. Þessi raforka er framleidd með kolum, olíu, gasi og einnig um 19% eða 70 Twst í kjarnorkuverum (14 alls). Nýjasta orkuverið af því tagi framleiðir árlega um 11 Twst! Ef horft er til fleiri Evrópulanda rýkur árleg notkun fljótt upp í 1000-2000 Twst. Borið saman við okkar 12 Twst (sem ekki eru enn í hendi) er erfitt að ætlast til að Evrópubúar rýni mikið til norðurs varðandi lausn sinna orkumála. Í raun má segja að „um þá miklu hreinu orku“ sem forsetinn vísar til, þá dugar hún nokkurn veginn til að fullnægja orkuþörfinni í Glasgow og nágrenni.Orkan hrekkur skammt Erfitt er að sjá hvað forsetinn er að fara þegar þessar tölur er bornar saman. Sem þjóð með rúmlega 300 þúsund íbúa erum við öfundsverð hvað orku varðar, en hún hrekkur skammt þegar kemur að þjóð með tugum milljónum íbúa. Annað atriði sem forsetinn lagði mikla áherslu á í ræðu sinni er að fjárfesting í sæstreng milli Íslands og Bretlands sé mjög áhugaverður kostur. Vísaði hann þar til eigin vitneskju „um marga fjárfesta sem hefðu áhuga á að fjárfesta í sæstreng til langframa.“ Á undanförnum árum hafa forsvarsmenn Landvirkjunar fjallað um ýmsa kosti við hugsanlega tengingu á orkukerfi Landvirkjunar við dreifikerfin í Bretlandi og Evrópu um sæstreng. Þar hefur verið bent á samningsbundinn orkuútflutning, sölu á tímabundinni umframorku, sem oft er til staðar í kerfinu og víðtækari sölumöguleika, ef álverin taka að draga úr orkukaupum. Þá væri í vissum tilfellum einnig unnt að fá orku að utan ef þess þyrfti með. Bent hefur verið á jákvæða reynslu og hagkvæmni af samtengingu orkukerfa landa Vestur-Evrópu varðandi tilflutning orku milli álagsvæða. Nánari athugun á þessum málum kom fram í skýrslu sem „ráðgjafarhópur um lagningu sæstrengs“ skilaði til atvinnumálaráðuneytisins í lok júní sl. Þar er tekið undir mörg almenn sjónarmið sem Landsvirkjun hefur bent á. Þar kemur einnig fram að strengur sem flutt gæti 6-9 teravattstundir til Bretlands gæti kostað 300-500 milljarða króna (ígildi tveggja til þriggja Kárahnjúkavirkjana). Til viðbótar þessu kæmi kostnaður við frekari orkuöflun til að auka hagkvæmni sæstrengsins. Þá er bent á, síðast en ekki síst, að enn sé svo margt óljóst varðandi lykilatriði sem hafa mikil áhrif á hagkvæmni verksins að rétt sé að flýta sér hægt og skoða mikilvæga þætti betur. Hér mætti einnig vísa í umfjöllun í grein sem Valdimar K. Jónsson og Skúli Jóhannsson skrifuðu í Fréttablaðið 31. október sl., en þar eru tíundaðir nánar ýmsir þættir tengdir þessu. Hafandi kynnt sér ofangreind gögn með öllum þeim varnöglum sem þar eru slegnir, kemur mjög á óvart að hálfu ári síðar er blásið í lúðra á jafnafgerandi hátt og gert var í Lundúnum í síðustu viku. Er árið 2007 gengið í endurnýjaða lífdaga? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun
Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir Skoðun
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun
Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir Skoðun