Snæfríður Baldvinsdóttir bráðkvödd 20. janúar 2013 20:15
Snæfríður Baldvinsdóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Bifröst, var bráðkvödd á heimili sínu í gær. Foreldrar hennar eru Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins. Snæfríður fæddist í Reykjavík 18. maí 1968, en ólst upp á Ísafirði til tólf ára aldurs. Hún stundaði tónlistarnám við Tónlistarskóla Ragnars H. Ragnar á Ísafirði frá barnsaldri, með fiðluleik sem aðalgrein. Snæfríður lauk stúdentsprófi frá M.R. 1988, en las að mestu utanskóla til prófs, þar sem hún stundaði fyrirsætustörf frá sautján ára aldri með aðsetur í París og Róm. Snæfríður var búsett í Róm í rúman áratug (1990-2000) og í Mexico City (2001-03), þar sem hún var aðstoðarframkvæmdastjóri Ítalska verslunarráðsins. Á Rómarárunum tók hún B.Sc.-próf í hagfræði og alþjóðasamskiptum frá John Cabot University (1995) og MS-próf í fjármálahagfræði og stærðfræði frá St. John's University (2000). Árið 2011 lauk hún meistaraprófi frá Háskóla Íslands í þjóðhagfræði og hagmælingum (ekonometriu). Heimkomin árið 2003 gerðist Snæfríður aðjúnkt og síðar lektor í hagfræði við Háskólann á Bifröst. Á s.l. hausti var hún ráðin til starfa sem sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu. Frá árinu 2010 sat hún í stjórn Neytendasamtakanna og í framkvæmdastjórn frá hausti 2012. Fyrri sambýlismaður Snæfríðar var Marco Brancaccia. Saman eiga þau dótturina Mörtu Brancaccia Snæfríðardóttur framhaldsskólanema. Seinni sambýlismaður Snæfríðar var Gunnar Gylfason framkvæmdastjóri.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira