Tónlist

Tuttugu ár af tónlist

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Mugison- Haglél 32.000 eintök árið 2011. Söluhæstur með stakan titil.
Mugison- Haglél 32.000 eintök árið 2011. Söluhæstur með stakan titil.
Plötusala á Íslandi hefur verið reikandi á milli ára en þó hefur sala á íslenskum titlum að mestu haldist óbreytt undanfarin ár. Fréttablaðið fór á stúfana og kannaði plötusölu á Íslandi síðastliðin tuttugu ár.

Fyrir tuttugu árum var tónlistarlífið á Íslandi virkilega blómlegt og fjölbreytt. Fjölmargar tímamótaplötur komu út og margar þeirra hafa staðist tímans tönn með miklum sóma. Stærsta nafn íslenskrar tónlistarsögu á alþjóðavísu, Björk, gaf árið 1993 út sína fyrstu stóru plötu sem ber nafnið Debut og fór hún sigurför um heiminn. Bubbi Morthens var ákaflega virkur og gaf út plötuna Lífið er ljúft, ásamt því að gefa út plötuna Svefnvana með hljómsveit sinni og Rúnars Júlíussonar, GCD. Landslið poppara var einnig afkastamikið á árinu en Páll Óskar, Stjórnin, Todmobile, Ný dönsk og fleiri gáfu út plötur þetta ár.

„Það sem er forvitnilegt er það að plötusala er mjög svipuð í dag og árið 1993 en hún náði hámarki árið 2005,“ segir Jónatan Garðarsson tónlistarsérfræðingur og rokksögukennari. Sala á plötum, til dæmis árið 2011 og 2012 er ekki jafn dreifð og hún var á árum áður, líkt og Mugison og Ásgeir Trausti sanna.

Árið 1993 var algengt að listamenn væru að selja um fimm þúsund eintök, sem gefur gullplötur. „Þetta ár fóru ellefu plötur í gull,“ bætir Jónatan við. Heildarplötusalan var um þrjú hundruð þúsund eintök en einungis þrjátíu prósent af sölunni voru íslenskar plötur.

Kristján Jóhannsson seldi flest eintök af plötunni sinni, Af lífi og sál, þetta ár eða um fimmtán þúsund eintök en rétt á eftir honum kom Bubbi Morthens með þrettán þúsund eintök seld af plötunni Lífið er ljúft. Plöturnar Debut með Björk, Spillt með Todmobile, Desember með Siggu Beinteins og Ekki þessi leiðindi með Bogomil Font og Milljónamæringunum seldust í um sjö þúsund eintökum þetta ár.

Kristján Jóhannsson- Af lífi og sál 15.000 eintök árið 1993
Árið 2005 var metsöluár í plötusölu á Íslandi, en þá var heildarplötusalan 820 þúsund eintök og hlutfallið af því var 55 prósent íslenskt efni og 45 prósent erlent efni. Mest seldu plöturnar voru plata Garðars Thors Cortes, sem er honum samnefnd, og platan Þú átt mig ein með Óskari Péturssyni Álftagerðisbróður, en þær seldust báðar í fimmtán þúsund eintökum. Björgvin Halldórsson seldi tólf þúsund eintök af plötunni Ár og öld og þá seldi Sigur Rós tíu þúsund eintök af plötunni Takk.

Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök (komin vel yfir 30.000 í dag)
Árið 2012 var heildarplötusalan um þrjú hundruð þúsund eintök sem telst ansi lítið, en með tilkomu Spotify og annarra tónlistarveitna hefur plötusala dregist mikið saman. Íslensk tónlist var rúmlega áttatíu prósent seldrar tónlistar.

Ásgeir Trausti seldi 23 þúsund eintök af plötu sinni Dýrð í dauðaþögn en hún er komin vel yfir þrjátíu þúsund eintök í dag. Of Monsters and Men seldi ellefu þúsund eintök af plötunni My Head Is an Animal en það er þó athyglisvert að hún kom út árið 2011. Retro Stefson seldi 7.500 eintök af samnefndri plötu og Helgi Björnsson seldi fimm þúsund eintök af plötunni Heim í Heiðardalinn.

Baggalútur-Mamma þarf að djamma 6.000 eintök árið 2013
Í ár tróna Baggalútsmenn á toppnum með plötuna Mamma þarf að djamma, en sem stendur hafa um sex þúsund eintök selst. Plötur Of Monsters and Men og Ásgeirs Trausta eru komnar yfir fimm þúsund seld eintök á árinu. Aðrar plötur sem seljast vel í ár eru platan Jólakveðja sem Sigríður Thorlacius sendi frá sér, Kaleo með samnefndri hljómsveit og Helgi syngur Hauk með Helga Björnssyni.

Bubbi Morthens – Lífið er ljúft 13.000 eintök
Samantekt á milli ára:

Árið 1993

Kristján Jóhannsson - Af lífi og sál 15.000 eintök

Bubbi Morthens – Lífið er ljúft 13.000 eintök

Todmobile – Spillt, Björk – Debut, Sigga Beinteins – Desember, Bogomil Font og Milljónamæringarnir – Ekki þessi leiðindi um 7.000 eintök.

KK band – Hotel Föroyar 6.000 eintök.


Stefán Hilmarsson – Líf, Ný dönsk – Hunang 4.000 eintök

Jet Black Joe – You Ain‘t here 3.000 eintök

Garðar Thor Cortes- Cortes 15.000 eintök árið 2005
Árið 2005

Garðar Thor Cortes – Cortes 15.000 eintök

Óskar Pétursson – Þú átt mig ein 15.000 eintök

Björgvin Halldórsson – Ár og öld 12.000 eintök

Sigur Rós – Takk 10.000 eintök

Helgi Björns – Yfir Esjuna 10.000 eintök

Írafár – Írafár 9.000 eintök

Árið 2011

Mugison – Haglél 32.000 eintök

Of Monsters and Men- My Head Is An Animal 11.000 (Platan kom samt út arið 2011 en er samt næst mest selda platan árið 2012)
Árið 2012

Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök (komin vel yfir 30.000 í dag)

Of Monsters and Men – My Head Is An Animal 11.000 eintök (platan kom út árið 2011 en er samt næstmest selda platan árið 2012

Retro Stefson – Retro Stefson 7.500 eintök

Helgi Björns – Heim í heiðardalinn 5.000 eintök

Minningartónleikar um Ellý Vilhjálms 4.700 eintök

Raggi Bjarna – Dúettar 4.400 eintök

Sigur Rós – Valtari 4.300 eintök

Skálmöld – Börn Loka 4.300 eintök

Það sem af er árinu 2013

Baggalútur – Mamma þarf að djamma 6.000 eintök

Of Monsters and Men og Ásgeir Trausti eru báðar komnar vel yfir 5.000 eintök






Fleiri fréttir

Sjá meira


×