Skoðun

Ferðafrelsi? Annar hluti

Þorvarður Ingi Þorbjörnsson skrifar
Tómas Guðmundsson skrifaði eitt sinn að landslag yrði lítils virði ef það héti ekki neitt. Gildir kannski það sama ef fólk hefur ekki frelsi til að njóta þess?

Nokkuð hefur verið rætt innan ferðaþjónustunnar og ferðaklúbbsins 4x4, hve markvisst hefur verið unnið að því að skerða ferðafrelsi á Íslandi. Ferðafólk er dregið í dilka eftir ferðamáta, sumt þykir tilhlýðilegt og annað ekki. Hesturinn hefur verið nefndur „þarfasti þjónninn“, og það hefur þótt göfugt í seinni tíð að fara sem mest um á „tveimur jafn fljótum“. Þegar „sjálfrennireiðin“ og önnur vélknúin farartæki komu fyrst til landsins hófust nýir tímar, leitað var nýrra leiða við að komast milli byggðra bóla.

Síðar var farið að gera akhæfa vegi, til að komast á milli staða á fljótlegri máta en ríðandi eða gangandi og Íslendingar hófu að sækja inn á hálendið á jeppum og trukkum. Leitað var leiða sem farartækjum þessum væru færar, og byrjað að gera ófærur færar. Þeir sem stunduðu þessar ferðir voru hetjur hálendisins, og enn í dag förum við þessar leiðir. Sumar hafa verið lagfærðar til muna og eru mikið eknar, aðrar minna. Þessir vegslóðar eru hluti af menningu okkar og sögu og mega ekki glatast.

Gríðarleg þróun

Ferðamennska á vélknúnum farartækjum hefur þróast gríðarlega og á aðra vegu en í öðrum löndum. Ísland er jú strjálbýlt og við eigum gríðarleg víðerni, við höfum þróað og smíðað sérhönnuð farartæki til ferðalaga um landið á öllum árstíðum. Þetta eru svokallaðir „ofurjeppar“, sérbreyttir jeppar til aksturs á stórum dekkjum, þannig að hleypa megi lofti úr – mýkja til aksturs á vondum vegum og vegleysum, og mýkja enn meira í til að aka á snjó. Þetta eru farartækin sem flytja okkur hraðar og öruggar um vegi og vegleysur en þekkist annars staðar, enda eru íslenskar aðstæður einstakar. Ekki hafa aðeins verið þróuð farartæki, heldur hefur orðið til þekking og reynsla til ferðalaga allt árið.

Það er svo mikill munur á ferðamennsku Íslendinga og erlendra gesta sem aka um landið án leiðsagnar eða handleiðslu fagmanna, að tímabært er að gera þar greinarmun á. Markvisst er unnið að því að fjölga erlendum ferðamönnum á Íslandi, - ómarkvisst er unnið að því að taka á móti þeim og stýra hegðun þeirra. Víða er Ísland selt sem haftalaust til ferðalaga: leigðu 4x4 bíl og þú mátt aka nánast hvar sem þú vilt. Það sýnir sig að upplýsingagjöf yfirvalda til erlendra ferðamanna er í molum, á meðan t.a.m. ferðaklúbburinn 4x4 hefur haldið uppi þrotlausum áróðri gegn utanvegaakstri og komið að stikun vandfarinna leiða og uppgræðslu rofsvæða.

Á sama tíma fara erlendir ferðamenn um landið og hafa litlar sem engar upplýsingar um landið og viðkvæma náttúru þess. Þar er oft hengdur bakari fyrir smið.




Skoðun

Sjá meira


×