Skerða barna- og vaxtabætur um 600 milljónir Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2013 22:00 Með skerðingu vaxta- og barnabóta fást um 600 milljónir króna sem veita á til heilbrigðisþjónustu. Mynd/Stefán
Stjórnvöld hyggjast skerða hámarks barna- og vaxtabætur um 600 milljónir króna og þróunaraðstoð um hundruð milljóna. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir þetta gert til að unnt sé að veita meira fé til heilbrigðismála. Þetta kom fram í fréttum RÚV í dag. „Í fjárlagafrumvarpinu hefur ekki verið gengið út frá skerðingu á vaxta- og barnabótum, en hins vegar er í umræðu í nefndinni að það komi til álita að lækka hámarks vaxta- og barnabætur til að skapa um 600 milljóna svigrúm fyrir forgang heilbrigðisþjónustunnar,“ sagði fjármálaráðherra. Fjáraukafrumvarpið var tekið úr fjárlaganefnd í fyrradag og er tilbúið til annarrar umræðu. Nefndin ræddi fjárlagafrumvarpið á fundi í gærkvöldi og í dag. „Vonir standa til að hægt verði að taka fjárlagafrumvarpið sjálft úr nefnd snemma í vikunni og þá er það tilbúið til annarrar umræðu líka,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar. Fjárframlög til heilbrigðiskerfisins verða aukin um 3.500 milljónir króna og þar af fara 1.500 milljónir til tækjakaupa á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Á móti þessari framlagsaukningu segir fréttastofa RÚV að líklegt sé að fjárveitingar til Ríkisútvarpsins verði skertar um 215 milljónir til viðbótar og að verið sé að skoða rekstur ráðuneyta. Boðaðar hafa verið meiriháttar breytingar á fjárlagafrumvarpinu.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Sjá meira