Lengi viljað útrýma öllum undanþágum Elimar Hauksson skrifar 15. október 2013 07:00 Halldór segir að skattgreiðendur eigi ekki að bera kostnað af lóðaúthlutunum til trúfélaga. fréttablaðið/heiða mynd/Heiða
Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sveitarfélögin úthluti trúfélögum ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Alls sögðust 71,3 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni mjög eða frekar andvíg úthlutun ókeypis lóða. Um 18,8 prósent sögðust hlutlaus en tíu prósent sögðust frekar eða mjög fylgjandi því að trúfélög fái ókeypis lóðir. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir það lengi hafa verið stefnu sveitarfélaganna að afnema hvers kyns undanþágur. „Ég heyrði fréttirnar af þessari könnun og niðurstöðurnar komu mér ekkert á óvart. Bæði hefur viðhorf til svona undanþága breyst og svo er hitt að trúfélög eru umdeildari í dag en þau voru hér áður,“ segir Halldór. Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga eru kirkjur og bænahús skráðra trúfélaga undanþegin fasteignaskatti. Halldór segir að slíkt hafi einnig átt við um íslenska ríkið en þar hafi orðið breyting á. „Fyrir nokkrum árum borgaði ríkið ekki fasteignaskatt af sínum eignum nema að litlu leyti. Framtíðarmúsíkin er að útrýma þessum undanþágum,“ segir Halldór.
Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira