Tónlist

Forsala hafin á Sónar

Taka tvö Frá tónleikum Gus Gus á Sónar í febrúar. Fréttablaðið/valli
Taka tvö Frá tónleikum Gus Gus á Sónar í febrúar. Fréttablaðið/valli
Í dag hefst forsala á tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík sem fer fram dagana 13. til 15. febrúar 2014 í Hörpu. Takmarkað magn miða verður í sölu á sérstöku verði, en þriggja daga miðar verða á 12.900. Fullt verð á hátíðina er 16.900 fyrir alla þrjá dagana.

Hátíðin vakti mikla lukku er hún var haldin í fyrsta sinn hér á landi í byrjun árs. Icelandair hefur hafið sölu á sérstökum pakkaferðum á hátíðina. Fyrstu listamennirnir verða kynntir í maí en umfang hátíðarinnar verður stærra en síðast þar sem spilað verður á sex sviðum í Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×