Naut liðsinnis systra sinna við upptökur Sara McMahon skrifar 15. apríl 2013 15:00
Þriðja plata söngkonunnar Ólafar Arnalds, Sudden Elevation, kom út fyrir nokkru. Upptaka plötunnar fór fram í sumarbústað í Hvalfirði og naut Ólöf meðal annars liðsinnis systra sinna við gerð hennar. Að sögn Ólafar einkenndist upptökuferlið af þægilegu flæði sem veitti henni frelsi til að sinna tónlistinni þegar hún var í ákjósanlegu hugarástandi. „Ég fékk lánaðan ævintýralegan jakútískan bústað í Hvalfirði og dvaldi þar í tvær vikur við upptökur með dyggri aðstoð Skúla Sverrissonar. Ég kveikti eld í eldstæðinu á hverjum morgni, fór í göngutúr þegar mig langaði og svaf þegar ég þurfti að sofa. Ég var mjög frjáls og gat gert hlutina á mínu síbreytilega tempói,“ útskýrir Ólöf. Sudden Elevation er hennar fyrsta verk sem er allt á ensku og leikur Ólöf að auki á flest hljóðfærin sjálf, þar á meðal á fiðlu, gítar og hörpu. „Ég hef aldrei verið í góðu sambandi við nótnaskrif og á stundum erfitt með að miðla hugmyndum mínum til annarra tónlistarmanna. Það var því gott að hafa nægan tíma til að geta spilað sjálf á hljóðfærin fyrir þessa plötu.“ Systur Ólafar komu að gerð plötunnar og syngur yngri systir hennar, Klara (meðlimur í sveitinni Boogie Trouble), með henni í tveimur lögum en sú eldri, Dagný, leikur á píanó í einu lagi. Söngkonan viðurkennir að það hafi verið þægilegt og gaman að vinna með systrum sínum. „Það sem mér finnst skemmtilegast við að vinna með systrum mínum er hvað hugrenningatengslin eru lík. Ég get verið mjög „kryptísk“ í máli en þær eru með kóðann og skilja hvað ég á við.“ Í sumar tekur við strangt tónleikahald um Bandaríkin og Evrópu og gerir Ólöf ráð fyrir því að vera á stöðugu ferðalagi næsta árið. Hún kemur þó heim á tveggja vikna fresti til að verja tíma með syni sínum. „Nú fer maður aftur á þrekhjólið og túrar og túrar. Ég hef verið heima í rúmt ár og fengið góðan tíma til að kjarna mig, sem er gott því stöðug ferðalög geta verið slítandi,“ segir hún að lokum. Fékk aðstoð frá aðdáendum á Pledgemusic.comÓlöf safnaði fé fyrir plötunni á vefsíðunni Pledgemusic.com. Hún segir síðuna nýtast einyrkjum sem henni vel og einnig vera frábæra leið fyrir hlustendur og tónlistarfólk til að vera í samskiptum. „Kostnaðurinn sem maður þarf að standa straum af er margvíslegur. Þó maður fái fjármagn til að gera plötu þá er lítið eftir til að gera myndband eða til að kosta tónleikaferðalag. Með aðstoð Pledgemusic er meiri von um að koma út á sléttu,“ segir hún og bætir við: „Þetta er jákvæð leið sem tekur mið af „digitalíseringunni“ og kynning á sama tíma. Maður verður að aðlagast breyttum aðstæðum, maður getur ekki verið fýlu yfir því að fólk hlaði tónlistinni manns ókeypis niður á netinu. Það er eins og að vera handskrifari sem varð fúll þegar Gutenberg hóf að prenta bækur.“
Tónlist Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira