Tónlist

Spennandi heimsókn

Trausti Júlíusson skrifar
Colin Stetson spilar á Volta 17. mars.
Colin Stetson spilar á Volta 17. mars.
Tónleikaárið 2013 hefur farið frekar rólega af stað ef undanskilin er Sónar-hátíðin sem lífgaði upp á annars daufan febrúarmánuð. Fram undan eru þó flottir tónleikar. David Byrne mun spila ásamt St. Vincent í Hörpu í ágúst. Það er strax hægt að fara að hlakka til.

Sunnudagskvöldið 17. mars spilar svo saxófónleikarinn Colin Stetson á Volta. Stetson hefur gefið út nokkrar plötur með eigin tónlist en er líka þekktur fyrir að hafa mikið spilað með öðrum listamönnum. Hann hefur spilað inn á plötur með Tom Waits, Feist, Bon Iver og TV on the Radio. Þekktastur er hann samt sennilega fyrir samstarf sitt við Arcade Fire. Hann spilaði bæði inn á Neon Bible og The Suburbs og hefur mikið spilað með hljómsveitinni á tónleikum.

Stetson spilar á margar tegundir blásturshljóðfæra; klarinettu, bassaklarinettu, franskt horn og fleira. Hann er samt þekktastur fyrir saxófónleikinn. Hann spilar m.a. á bassasaxófón, sem er stærsti meðlimur saxófónafjölskyldunnar og frekar sjaldgæft hljóðfæri. Tónlistin á sólóplötum Stetsons er að stórum hluta leikin af fingrum fram. Hún er bæði framúrstefnuleg og tilraunakennd. Hljóðin sem hann nær út úr saxófóninum og tjáningin í spilamennskunni er einstök. Það má því gera ráð fyrir magnaðri tónleikaupplifun á Volta. Auk Stetsons spilar Úlfur á tónleikunum.

Colin Stetson hefur gefið út nokkrar stórar plötur. Hann er með fína vefsíðu (colinstetson.com) þar sem finna má hlekki yfir á bandcamp- og soundcloud-síðurnar hans. Á þeim er mikið af tónlist sem hægt er að hlusta á. Næsta plata Stetsons, New History Warfare Vol. 3: To See More Light, kemur út 30. apríl. Hún var tekin upp undir stjórn Bens Frost. Á henni spilar Stetson á altó-, tenór- og bassasaxófón en Justin Vernon úr Bon Iver syngur í fjórum lögum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×