Innipúkinn tekur á sig mynd Hanna Ólafsdóttir skrifar 12. júlí 2013 07:30 Diljá Ámundadóttir er skuleggjandi Innipúkans í ár ásamt Steinþóri Helga Arnþórssyni. Mynd/Arnþór
Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin um verslunarmannhelgina eins og hefð er fyrir. Í ár verður hátíðin haldin á þremur stöðum en aðaldagskráin mun fara fram á skemmtistaðnum Faktorý sem senn verður lokað. Það eru Diljá Ámundadóttir og Steinþór Helgi Arnþórsson sem standa að skipulagningu Innipúkans en að sögn Diljár er hátíðin vinsæl hjá fólki sem af einhverjum ástæðum fer ekki út úr bænum þessa helgi. „Þetta er svona hátíð fyrir fólk sem vill ekki gista í tjaldi og stelpur sem vilja heldur vera í háhæluðum skóm, klæða sig í kjól og setja á sig naglakakk en vera í pollagalla.“ Eins og fyrr segir mun hátíðin fara fram á þremur stöðum að þessu sinni. Faktorý verður með tónlistardagskrá á föstudeginum og laugardeginum en einnig er planið að endurvekja gamla Rykkrokk og hafa tónleika snemma á laugardagskvöldinu í Fellagörðum. Á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár eru Valdimar, Steed Lord og Þórunn Antonía. „Þetta verður mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Auk þess að vera með dagskrá á Faktorý, þar sem hægt verður að opna út í Hjartagarð og sitja með teppi og, ef fólk vill, fá smá útilegustemmningu í bland við frábæra tónleikum í Fellagörðum, verður fjölskylduball á nýja reitnum hjá Vitatorginu. Þar verður grillað og hljómsveitin Magga Stína og Hringir koma fram. Nú vonum við bara að veðurguðirnir verði í sólskinsskapi,“ segir Diljá að lokum.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“