Skoðun

Vita foreldrar hvað þeir skipta miklu máli?

Ása Sigurlaug Harðardóttir skrifar
Viðhorf foreldra til skóla og menntunar barna sinna hefur áhrif á það hvaða menntaleið börnin velja sér í lífinu. Rannsóknir hafa sýnt að viðhorf foreldra hafa jafnvel meira að segja en efnahagur, heilsa og félagsleg staða fjölskyldunnar.

Niðurstöður viðamikillar rannsóknar í Bandaríkjunum árið 2007 sýndu að virk þátttaka foreldra í öllu skólastarfi hefur marktækt forvarnargildi gegn einelti og áhættuhegðun, net-, áfengis- og vímuefnafíkn. Ávinningur af góðu samstarfi skilar sér einnig í betri líðan barnanna í skólanum, auknum áhuga og bættum námsárangri svo eitthvað sé nefnt. Þá er ekki aðeins átt við samstarf um viðburði á vegum skólans, heldur einnig beina þátttöku foreldra í stefnumörkun skólamála.

Foreldrar oft óöryggir

Hins vegar er það oft þannig að foreldrar eru óöruggir í hverju þeirra framlag eigi og megi liggja og hvert þeirra hlutverk er í skólanum. Í Aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla er kveðið á um þátt foreldra á öllum stigum skólastarfs, allt frá mótun skólastefnu yfir í mat á innra og ytra starfi. Þar hafa báðir aðilar skyldum að gegna. Sérstök áhersla er lögð á þennan þátt í aðalnámskrá framhaldsskóla, en einmitt á þeim tímapunkti virðast margir foreldrar sleppa unglingunum sínum lausum og hætta að „skipta sér of mikið af“.

Íslenskir kennarar vinna frábært starf fyrir börn í leik-, grunn og framhaldsskólum landsins, oft við erfiðar aðstæður sem skapast m.a. af of stórum bekkjum, naumum fjárframlögum og sameiningarferli tveggja eða fleiri eininga á tímum sparnaðar. Þessar aðstæður geta skapað mikla togstreitu og óöryggi í starfi. Foreldrar geta sýnt þeim stuðning með því að sýna þessum aðstæðum kennara skilning.

Heimili og skóli – landssamtök foreldra hafa það að markmiði að efla foreldra í uppeldishlutverki sínu og veita þeim stuðning og hvatningu til virkrar þátttöku í skólasamfélaginu. Margir foreldrar hafa leitað til samtakanna frá stofnun þeirra til að fá skilning, styrk og stuðning við skólagöngu barnanna, sérstaklega þeir sem eiga börn í grunnskóla. Samtökin starfa jafnt fyrir foreldra barna og unglinga á öllum skólastigum. Einnig leita kennarar, skólastjórnendur og aðrir innan skólanna til samtakanna og fá upplýsingar um samskipti heimilis og skóla.

Ein leið samtakanna til að stuðla að auknum áhuga, ábyrgð og áhrifum foreldra á skóla- uppeldis- og fjölskyldumál er Foreldradagurinn sem haldinn hefur verið frá 2011.




Skoðun

Sjá meira


×