Muck voru steyptir í gifs Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. maí 2013 12:39 Þungarokkshljómsveitin Muck var steypt í gifs á Listahátíð í gær. MYNDIR/VALLI
Þungarokkshljómsveitin Muck spilaði á Listahátíð í gær. Tónleikarnir voru með óhefðbundnu sniði, en á meðan þeim stóð var tónleikarýmið steypt í gifs af hópi gifssteypara. Var þetta gjörningur eftir listamanninn Magnús Pálsson sem fór fram undir stjórn Ragnhildar Stefánsdóttur myndhöggvara. Verkið ber nafnið Einsemd:Steypa, og vísar í lag hljómsveitarinnar, I Stand Alone. Fórnuðu fötunum Ási í Muck segir hljómsveitina hafa verið að vinna mikið með einsemdina og að frysta andartök í tónlist. Það sé ákveðin andstæða við þann hasar og hávaða sem einkennir þungarokkið. Gjörningurinn miðaðist við að Muck spiluðu hefðbundið sett í hálftíma og svo tók við rúmlega þriggja tíma ferli af gifsun þar sem hljómsveitarmeðlimir þurftu að vera grafkyrrir. Ási segir þá félaga hafa passað vel að drekka ekkert fyrr um daginn. „Við vorum meðvitaðir um að við gætum ekkert skroppið frá í þessa þrjá tíma svo við pössuðum vel upp á þetta. Eins vissum við að við gætum þurft að fórna fötunum sem við vorum í, skórnir voru klipptir af mér og bolir og buxur hurfu inn í gifsið. En það var ekkert mál, við pössuðum bara að vera ekkert í dýrustu fötunum okkar“, segir Ási. Vilja tvinna tónlistina saman við önnur listform Meðlimir Muck eru þó sammála um að málstaðurinn hafi verið verðugur. „Við erum rosalega ánægðir með þetta samstarf. Við viljum gera sem mest af því að tvinna tónleikana okkar saman við ádeilu, gjörninga og hin ýmsu listform.“ Hljómsveitin Muck spilar á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess næstkomandi laugardag á tónleikastaðnum Volta.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“