Launin „út úr korti“ - málaferli beinast aðeins að Glitni Magnús Halldórsson skrifar 8. febrúar 2013 12:00 Friðbert Traustason.
Stjórnarmaður í Samtökum landssamtaka lífeyrissjóðanna segist telja laun slitastjórnarmanna í þrotabúum föllnu bankanna út úr öllu korti, en lífeyrissjóðir sem eru kröfuhafar í bú Glitnis teldu að slitastjórn Glitnis hefði ofgreitt sér ríflega 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín og sinna fyrirtækja fyrir þrotabú bankans. Fimm lífeyrissjóðir í hópi kröfuhafa Glitnis telja að lögmennirnir Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson, sem sitja í slitastjórn Glitnis, hafi oftekið sér ríflega 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín og sinna fyrirtækja fyrir þrotabú bankans. Hafa lífeyrissjóðirnir farið fram á það að Héraðsdómur Reykjavíkur sjái til þess að þrotabúin fái endurgreitt meintan oftekinn launakostnað. Steinunn Guðbjartsdóttir hefur neitað þessu alfarið, og sagt að launagreiðslur þrotabús Glitnis séu sambærilegar við önnur þrotabú hér á landi. Í málinu er ekki síst horft til þess að tímakaupið sé of hátt, miðað það sem upp á lagt var samkvæmt töxtum frá Fjármálaeftirlitinu, þegar slitastjórnirnar voru skipaðar. Friðbert Traustason, stjórnarmaður og í Landssamtökum lífeyrissjóða og formaður stjórnar Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir að launamálin hafi ekki verið rædd á vettvangi Landssamtaka lífeyrissjóða, en að það sé hans skoðun að launin séu alltof há. „Ég skil ekki þessa gjaldtöku, og eins og þetta virðist vera þá er þetta út úr öllu korti, hvað þeir [lögmennirnir] eru að marka krókinn þarna," segir Friðbert. Kröfuhafar Kaupþings og LBI, gamla Landsbankans, hafa engar athugasemdir gert við launakostnað hjá slitastjórnum bankanna, og beinast því málaferli lífeyrissjóðanna fimm eingöngu að slitastjórn Glitnis.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira