Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur greint frá því að hann skuldi bókasafnssektir hálfa öld aftur í tímann.
Í viðtali við The Sun segist Richards hafa eytt mörgum góðum stundum á bókasafninu í heimabæ sínum, Dartford, þegar hann var barn og þótt sumar bækurnar sem hann fékk lánaðar svo góðar að hann hafi ekki fengið af sér að skila þeim.
Samkvæmt The Sun er líklegt að bókasafnsskuld Richards nemi í dag um fjórum milljónum íslenskra króna.
Keith skuldar bókasafninu
