Jóhanna hissa á nýja stjórnarsáttmálanum 23. maí 2013 13:03
Fráfarandi ríkisstjórn mætti til Bessastaða á ríkisráðsfund klukkan ellefu í morgun. Þar voru staðfest lög og stjórnvaldsaðgerðir ráðuneytis Jóhönnu Sigurðarsdóttir. Jóhanna, sem lætur formlega af embætti forsætisráðherra í dag, segist hissa á því hve nýr stjórnarsáttmáli virðist óljós og ómarkviss. „Ég minni á það að mín ríkisstjórn setti sér hundrað daga áætlun þegar hún tók við fyrir rúmum fjórum árum síðan, með 48 verkefnum sem hún framkvæmdi flest öll. Ég vona að það verði eins mikill kraftur í þessari ríkisstjórn og þessari sem er að fara frá.“ Jóhanna segir að sér hafi einnig komið á óvart hver margar nefndir þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætla skipa. „Þeir ætla skipa, tæplega 20 nefndir. Þeir sögðu engar nefndir bara aðgerðir strax þess vegna var ég svolítið hissa á því." Þá sagði Jóhanna að henni þættu það nokkur vonbrigði að sjá ekki meira afgerandi áætlun um hvað eigi að gera í tenglsum við skuldavandamál heimilanna enda hafi margir verið stórorðir um þau í kosningabaráttunni. „Annars óska ég bara nýrri ríkisstjórn góðs gengis og vona að henni takist að framkvæma öll þau loforð sem hún hefur gefið þjóðinni," sagði Jóhanna rétt áður en hún hélt á sinn síðasta ríkisráðsfund. Katrín Júlíusdóttir, fráfarandi fjármálaráðherra, sagði ýmislegt í stjórnarsáttmálanum lofa góðu og sé samhljóða hennar eigin skoðunum. „En það kom mér á óvart hve mikið er óklárt og hversu mikið á að fara í nefndir og starfshópa og hversu margar úttektir á eftir að gera. Það kom mér á óvart svona miðað við það hve menn voru kokhraustir í kosningabaráttunni og klárir á málunum þá þannig ég hélt nú að menn væru tilbúnari en þetta. Við bara vonum það besta og ég mun styðja öll góð mál frá þessu ágæta fólki,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, fráfarandi fjármálaráðherra.," sagði Katrín. Össur Skaphéðinsson fráfarndi utanríkisráðherra tók í svipaðan streng, margt gott væri að finna í nýjum stjórnarsáttmála. Hann væri sammála stefnunni sem tekin væri varðandi Drekasvæðið og sömuleiðis áherslu á norðurslóðir. „En vitaskuld er vík á milli vina í einu máli og hefur verið og það eru Evrópumálin. Ég vildi fara aðra leið en þessa en ég hins vegar bíð eftir því að þeir efni það loforð sem þeir hafa gefið um að það verði þjóðaratkvæðagreiðsla. Það er það sem skiptir langmestu máli, það er að fólkið fái sjálft að ráða." Nánar verður fjallað um þetta hér á Vísi og í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. En klukkan þrjú í dag mun ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar taka við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum.Hægt er að horfa á viðtöl við fráfarandi ráðherra hér að ofan.
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira