Undirbýr hárbók fyrir Norðurlöndin Álfrún Pálsdóttir skrifar 23. maí 2013 06:00 Ný bók Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack , lengst til hægri, var fengin til að gera hárbók fyrir danska fyrirtækið HH Simonsen sem er ætluð fyrir Norðurlandamarkað. Hér er hún ásamt sminkunni Fríðu Maríu í myndatökum fyrir nýju bókina.Fréttablaðið/valli „
Það er mjög gaman að vera að gera nýja bók en þessi hefur verið í undirbúningi síðan í janúar,“ segir hárgreiðslukonan Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack, sem er þessa dagana í myndatökum fyrir nýja bók sem er tileinkuð hári og hárgreiðslum. Það er danska hárfyrirtækið HH Simonsen sem gefur bókina út en eigendur þess heilluðust af fyrri bók Theodóru, Hárið, sem sló í gegn á Íslandi fyrir jólin. „Þeir sáu bókina mína er þeir voru hér á landi og höfðu samband við mig. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir mig og gaman að vera fengin til verksins. Smá meiri pressa að vera að vinna fyrir einhvern annan en sjálfan sig eins og þegar ég gerði Hárið,“ segir Theodóra en bókin er ætluð fyrir Norðurlandamarkað og skartar um tuttugu hárgreiðslum af ýmsum toga. Þessa dagana er Theodóra í stúdíói ásamt ljósmyndaranum Sögu Sigurðardóttur, sminkunni Fríðu Maríu Harðardóttur og stílistanum Hildi Sumarliðadóttur. „Saga tók allar myndirnar fyrir síðustu bók og hún flaug sérstaklega heim frá London til að gera þetta verkefni með mér. Það skiptir miklu máli að vera með gott teymi á bak við sig. Auk bókarinnar er hér tökulið að taka upp myndbönd sem verða líklega aðgengileg á netinu samhliða útgáfu bókarinnar.“ Velgengni bókarinnar Hárið hefur verið mikil en bókin hefur verið á topp 20 á metsölulistum síðan í janúar. Theodóra sér þó ekki fram á aðra bók í bráð því hún er einnig í námi í vöruhönnun hjá Listaháskóla Íslands. Hún er frekar með á bak við eyrað að gefa Hárið út erlendis. „Það er á langtímaplaninu en maður þarf að fara í gegnum mikinn frumskóg til að það geti orðið að veruleika. Það tekur tíma en væri mjög gaman ef af yrði.“
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Fleiri fréttir Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“