Plata fyrir lífsglatt og skemmtilegt fólk Álfrún Pálsdóttir skrifar 16. maí 2013 14:30 Dr. Gunni segir hann og Heiðu hafa verið með þessa hugmynd í kollinum í tvö ár en ákváðu að láta til skara skríða núna. Fréttablaðið/Valli „
Þetta er barnaplata innan sviga. Svona plata fyrir lífsglatt og skemmtilegt fólk,“ segir tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, sem er með nýja plötu í undirbúningi. Platan hefur fengið nafnið Alheimurinn og er Dr. Gunni, eins og hann er kallaður, í aðalhlutverki ásamt söngkonunni Ragnheiði Eiríksdóttur og Elvari úr hljómsveitinni Hellvar og trommaranum Kristjáni Frey Halldórssyni. Gunnar segir hann og Heiðu hafa verið með þessa hugmynd í kollinum í tvö ár en ákváðu að láta til skara skríða núna. „Við erum komin með fjórtán mjög góð lög sem við sömdum saman. Við erum á fullu að æfa núna og stefnum svo í stúdíó í byrjun júní,“ segir Gunnar en platan sjálf kemur ekki út fyrr en í október. „Mér skilst að það séu tvær til þrjár góðar tímasetningar á ári til að gefa út plötu og þetta er ein af þeim.“ Það er útgáfufyrirtækið Geimsteinn sem gefur út plötuna og upptökur fara fram í stúdíó þeirra í Keflavík. Stofnandi Geimsteins, Rúnar Júlíusson, lék einmitt stórt hlutverk á síðustu plötu Gunnars, Abbababb, sem kom út 1997. „Ég þarf að minnsta kosti þrjá þungavigtarpoppara til að koma í stað Rúnars sem var í hlutverki Hr. Rokks á síðustu plötu. Það verða stór nöfn gestasöngvarar á þessari plötu,“ segir Gunnar en vill ekki gefa upp nein nöfn enn þá. Þau stefna á að gefa frá sér fyrstu smáskífuna af plötunni Alheimurinn fyrir 17. júní.
Mest lesið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Er með gervigreindarþjálfara Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Bergþór Másson selur slotið á ný Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Lífið Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Menning Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Lífið Heitustu rapparar landsins í eina sæng Tónlist „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjá meira