Fullkomin leið til að drepa málinu á dreif Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. mars 2013 11:20 Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingarinnar.
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að með breytingatillögu Margrétar Tryggvadóttur þingmanns við stjórnarskrármálið á Alþingi hafi andstæðingar stjórnarskrárferilsins fengið fullkomna ástæðu til þess að drepa málið í málþófi. Samkomulag hafði tekist á milli stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar um frumvarp og þingsályktunartillögu þess efnis að stjórnarskrárfrumvarpið yrði ekki afgreitt í heild heldur yrði hægt að ljúka heildarendurskoðun á næsta kjörtímabili og nýtt þing gæti samþykkt það. Í umræðu um málið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í gær lagði Margrét hins vegar til að stjórnarskrárfrumvarpið yrði samþykkt í heild. Magnús Orri segir að með tillögu formanna stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar sé verið að reyna að stíga skref til þess að viðhalda stjórnarskrárferlinu á næsta þingi og vinna málið í sátt og samlyndi. „Breytingatillaga Margrétar setur sáttaferlið í uppnám vegna þess að nú hafa andstæðingar stjórnarskrárferilsins fullkomna ástæðu til að drepa málið í málþófi. Nú er ekki bara verið að fjalla um sáttartillöguna heldur mun umræðan litast af heildarplagginu og stöðu þess," segir Magnús Orri. „Það er þess vegna sem ég óttast að okkur takist ekki að sigla málinu í höfn á þessu kjörtímabili," segir Magnús Orri. Hann bendir auk þess á að málið verði ekki klárað alveg fyrir kosningar vegna þess að það þurfi alltaf nýtt þing til að samþykkja það.
Mest lesið „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira