Kjósum Stefán Einar til áframhaldandi forystu Hafdís Erla Kristinsdóttir og trúnaðarmaður VR hjá Icelandair skrifa 9. mars 2013 06:00 Nú eru í framboði til formennsku í VR tveir einstaklingar. Annar er Stefán Einar Stefánsson, sem hefur sinnt starfinu síðastliðin tvö ár af mikilli eljusemi og dugnaði. Á síðustu tveimur árum hefur hann barist fyrir auknum réttindum félagsmanna sinna, tekið þátt í að tryggja þeim launahækkanir sem nema að lágmarki 11,4% auk þess sem lágmarkslaun í félaginu hafa hækkað um 23,6% á sama tíma. Undir forystu Stefáns Einars tók VR við þjónustu við atvinnuleitandi félagsmenn sína og er nú svo komið að félagið hefur á sínum snærum átta vinnumiðlara og ráðgjafa. Þjónustan tryggir að VR veitir umfangsmeiri þjónustu við félagsmenn sína en nokkurt annað stéttarfélag í landinu. Eitt af kosningaloforðum Stefáns Einars var að koma á fót jafnlaunavog til að útrýma kynbundnum launamun. Félagði kynnti nýlega Jafnlaunavottun VR til sögunnar og nú þegar hafa um 30 fyrirtæki skráð sig til þátttöku. Þá hefur Stefán Einar barist fyrir því að stefnumótun í starfsmenntamálum verði sett á laggirnar og er sú vinna nú þegar hafin. Þá hefur Stefán Einar lagt áherslu á það að kjarasamningsgerðin verði tekin fastari tökum og verði betur undirbúin en hún hefur verið síðustu ár. Mikilvægt er að tryggja að sem flest sjónarmið komist að og hefur hann lýst því opinberlega yfir að Trúnaðarráð félagsins muni koma saman í aprílbyrjun til þess að hefja fyrstu skrefin í kjarasamningsundirbúningnum. Eru þetta bara örfá dæmi um þá sigra sem hafa unnist síðustu tvö ár. Mikilvægasti sigurinn er þó sá að eftir mikil átök í kringum félagið síðustu ár á undan hefur tekist að skapa starfsfrið í kringum þetta stærsta stéttarfélag landsins eins og ný vinnustaðagreining Capacent sýnir. Þá hefur traust félagsmanna til VR aukist um 33% frá því að Stefán Einar tók við. Fram undan er gerð nýrra kjarasamninga, en stefnt er að undirritun þeirra í lok þessa árs. Það er því brýnt að félagsmenn VR njóti þeirrar uppbyggingar á félaginu sem staðið hefur verið að síðustu tvö ár og þeirra krafta sem Stefán Einar hefur lagt í kjarabaráttu félagsmanna VR á þeim tíma. Sem trúnaðarmaður VR hef ég fengið að kynnast því góða starfi sem Stefán Einar hefur unnið síðustu tvö ár. Í því árferði sem nú ríkir mega félagsmenn ekki við því að skipt verði um skipstjóra í miðri ferð, stöðugleiki skiptir hér miklu máli. Þess vegna skulum við kjósa Stefán Einar til áframhaldandi forystu í öflugasta og stærsta stéttarfélagi landsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar