Hrikaleg hætta sögð steðja að Skagafirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. júlí 2013 23:45 Rennslið er vaxandi í Héraðsvötum sem brotið gætu sér leið í Húseyjarkvísl. Fréttablaðið/Vilhelm
Landeigendur segja vaxandi hættu á að Héraðsvötn brjóti sér leið í Húseyjarkvísl með hrikalegum afleiðingum fyrir beitar- og ræktarlönd. Vatn myndi leggjast að flugvellinum og neðri hluta Sauðárkróks. Brýnt sé að sveitarfélagið bregðist við. Ógnin er sögð stafa af Héraðsvötnum vegna breytinga sem orðið hafa á rennsli fljótsins. Í bréfi til byggðarráðs Skagafjarðar gera landeigendur við Húseyjarkvísl og Héraðsvötn norðan Húseyjarkvíslar kröfu um tafarlausar aðgerðir. „Um árabil hefur innrennsli úr Héraðsvötnum til vesturs um svokallaða Affalla og inn í Húseyjarkvísl farið vaxandi. Ef fram fer sem horfir og ekki verður brugðist við með varnaraðgerðum er vaxandi hætta á að Héraðsvötn brjóti sér leið til vesturs í Húseyjarkvísl og áfram og í hinn svonefnda Stóra-Skurð sem liggur austan Langholts, frá Holtstjörn að sunnan og norður til Miklavatns,“ útskýra landeigendurnir. Vísað er í mikið flóð sem varð í desember 2006 sem vísbendingu um það sem kann að verða. „Afleiðingarnar yrðu hrikalegar en ætla má að allt undirlendi frá Geldingaholti og út til Sauðárkróks færi undir vatn og stór ræktar- og beitarlönd bænda yrðu ónýtanleg með öllu. Vatn myndi leggjast að flugvellinum, hesthúsahverfinu og neðsta hluta Sauðárkróks,“ vara landeigendurnir við. Rifjað er upp að árið 2003 lögðu fulltrúar Vegagerðarinnar til varnargarð úr grjóti á mótum Affalla og Héraðsvatna í landi Valla en að ekki hafa orðið af því vegna andstöðu viðkomandi jarðeiganda. Eftir skoðun í maí 2005 hafi héraðsfulltrúi Landgræðslunnar lagt til varnargarð milli Löngumýrarsporðs og Geldingaholtseyjar. „Tíminn vinnur ekki með okkur í þessu máli og skjótra viðbragða er því þörf,“ segja landeigendurnir. Byggðarráð Skagafjarðar fól Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra að kanna málið. Ásta kveðst ekki hafa svör um málið að sinni.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira