Sömu efnisatriði og í deilunni í Danmörku Þorgils Jónsson skrifar 23. apríl 2013 06:00 Íbúar Fredriksberg í Kaupmannahöfn sjást hér mótmæla til stuðnings dönskum kennurum. Verkfallið hefur nú staðið yfir í þrjár vikur. Mynd/AFP
Eru kennaradeilur í Danmörku hliðstæðar kjaradeilu íslenskra kennara? Verkbann sem dönsk sveitarfélög lögðu á kennara hefur nú staðið í rúmar þrjár vikur. Nær sjötíu þúsund kennarar og hundruð þúsunda grunnskólabarna sitja heima. Deilan snýst um fyrirkomulag vinnutíma, þar sem sveitarfélögin vilja auka kennsluskyldu og veita skólastjórnendum vald til að skipuleggja skiptingu vinnudagsins. Hér á Íslandi standa yfir viðræður milli grunnskólakennara og sveitarfélaga þar sem meðal annars er rætt um sömu efnisatriði; hversu mikill tími fer í kennslu annars vegar og undirbúning og önnur verkefni hins vegar. Viðræðurnar eru í biðstöðu en stjórnvöld eru að fara yfir málin og verða þær teknar upp að nýju í haust. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að skoðun sambandsins sé sú að kennsluskyldu þyrfti að auka. „Við viljum búa til aðstæður þar sem bæði kennarar og sveitarfélögin geta hagnast. Kennsluskylda hvers kennara myndi aukast, en á móti fengi hann meiri laun.“ Ábati sveitarfélaganna fælist í því að kennurum mundi fækka nokkuð og skólarnir þyrftu að greiða færri yfirvinnutíma. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að rætt sé um mörg þau sömu efnisatriði hér og í Danmörku. Þó sé framferði sveitarfélaganna í Danmörku einsdæmi þar sem kennurum sé „gert að kyngja því sem sveitarfélögin velja“. Ólafur segir að íslenskir kennarar horfi ekki aðeins til kaups kennara eða fjölda kennslustunda. „Þetta snýst mest um vinnuaðstæður kennara og gæði kennslu. Sveitarfélögin vilja að við kennum meira á kostnað undirbúningsvinnu, en hvernig á það að bæta kennsluna?“ Halldór segir að þetta mál mætti leysa með skipulagsbreytingum þar sem létt væri á öðrum verkefnum. Hann er vongóður um að aðilar nái saman áður en til aðgerða kemur „þannig að báðir njóti góðs af“. Ólafur segir kennara reiðubúna til að skoða fyrirkomulag starfsins nánar, en grundvöllur samkomulags sé að menn horfist í augu við stöðu mála. „Ef menn átta sig á því að meiri fjármuni þarf í menntakerfið, þá mun nást saman, en ef reyna á að fjármagna breytingar á starfinu innan frá, þá er ég ekki nógu bjartsýnn.“Halldór Halldórsson og Ólafur Loftsson.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira