Stöðvuðu eftirlýstan mann - grunaður um stórfellt skartgriparán á Kýpur 23. apríl 2013 17:28 Mennirnir voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli.
Hæstiréttur Íslands stytti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir meintum stórglæpamanni sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í lok mars. Maðurinn kom ásamt tveimur félögum sínum til landsins skömmu fyrir páska en það vakti athygli tollvarða að mennirnir voru með sérstakan segul á sér sem er oft notaður til þess að gera þjófavarnir í verslunum óvirkar. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að maðurinn, sem er rúmenskur að uppruna, sé eftirlýstur af Interpol fyrir rán og líkamsárás á Kýpur á síðasta ári. Hann á að hafa brotist inn í skartgripaverslun í borginni Nikósíu og stolið þaðan skartgripum fyrir 32 milljónir króna. Þá á hann í sömu borg að hafa ráðist á verslunarstjóra stórmarkaðar og gengið harkalega í skrokk á honum auk þess sem hann og félagi hans eiga að hafa rænt hann uppgjöri verslunarinnar, sem var um tvær og hálf milljón króna. Fórnarlambið var illa farið eftir ránið og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í kjölfarið. Við meintum afbrotum liggur að hámarki lífstíðarfangelsi samkvæmt kýpverskum lögum. Stjórnvöld þar í landi hafa þegar óskað eftir að maðurinn verði framseldur. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 8. maí, en Hæstiréttur stytti þann tíma um viku, eða til 1. maí, eða á meðan framsalsmál hans er til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Mennirnir hafa lítil sem engin tengsl við land og þjóð eftir því sem rannsakendur komast næst.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira