Önnur hver kona í meðferð greinir frá kynferðisofbeldi Svavar Hávarðsson skrifar 22. apríl 2013 07:00 Konur, sem ánetjast áfengi, verða oft fyrir árásum kynferðisbrotamanna. Mynd/ Getty.
Greiningarviðtöl við rúmlega 4.100 einstaklinga sem hafa leitað sér lækninga hjá SÁÁ vegna áfengis- eða vímuefnavanda sýna að stór meirihluti þessa stóra hóps hefur verið beittur ofbeldi einhvern tímann á ævinni. Rúmlega önnur hver kona hefur verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir tölurnar yfirgengilegar og tala sínu máli, en þær eru fengnar úr greiningarviðtölum (ASI-viðtöl). „Þetta kemur upp úr kafinu þegar fólk fær svigrúm til að ræða þessi mál. Málin eru jafn ólík og þau eru mörg; sum eru nýtilkomin og stundum er langt um liðið. Sumir segja þessar sögur frá uppvaxtarárum sínum,“ segir Þórarinn. Tölurnar byggja á greiningarviðtölum við 2.850 karla og 1.249 konur sem leituðu sér lækninga hjá SÁÁ á árunum 2009 til 2011. Þar er leitað svara við því hvort einhver hafi einhvern tímann misnotað viðkomandi eða beitt hann ofbeldi. Þessu svara 83% kvenna og 59% karla játandi varðandi tilfinningalegt ofbeldi. Þegar líkamlegt ofbeldi á í hlut er það reynsla 64% kvenna; nær helmingur karlanna segir sömu sögu. Á sjöunda hundrað konur af þeim 1.249 sem viðtölin náðu til hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi, eða 53%. Rúmlega tíundi hver karl segir frá kynferðislegu ofbeldi, eða 11% þeirra. Þórarinn segir að þrátt fyrir að karlar hafi upplifað ofbeldi í mörgum tilfellum sé það ekkert í líkingu við það sem konur upplifa. „Konur hafa um langan tíma þurft að þola ofbeldi sem verður ekki borið saman við það sem karlar eru að upplifa, að mínu mati.“ Þórarinn slær varnagla við tölfræðilegum niðurstöðum eins og þessum. „Við vitum ekki hvað kemur á undan, ofbeldið eða neyslan, eða hvert orsakasamhengið er þarna á milli. Þessi mynd er afar flókin en þó er ljóst að þetta er reynsla sem eltir fólk. Svo verður að hafa hugfast að við vitum ekki hvað ofbeldi, af hvaða toga sem er, er algengt í okkar samfélagi. Við höfum því ekki þær tölur til samanburðar.“-
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Fleiri fréttir Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Sjá meira