Gunnar Smári um gildi alkapillu Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 22. apríl 2013 10:48 Gunnar Smári segir engan græða á lyfjalausum bata og því séu framlög af skornum skammti. „
Er þetta lyf sem fólkið sleppir að taka ef það vill komast í vímu? Ég þekki fólk sem myndi taka slíka ákvörðun,“ segir Gunnar Smári Egilsson formaður SÁÁ í samtali við blaðamann Vísis (á Facebook). Vísir greindi frá því í morgun að danska lyfjafyrirtækið Lundbeck hefur sett nýtt lyf á markaðinn en það hefur þau áhrif að draga úr áfengisneyslu þess sem tekur það. Gunnar Smári efast um gagnsemi slíkrar pillu en segir það gleðitíðindi ef lyfjaiðnaðinum tækist að draga úr þjáningum áfengis- og vímusjúklinga og aðstandenda þeirra. „Hingað til hefur þessi iðnaður því miður fyrst og fremst aukið vanda þessa sjúklingahóps, seinkað bata og haldið fólki frá batanum. En ef það kæmi fram lyf sem myndi lækna alka efast ég ekki um að sjúkrastofnanir SÁÁ myndu nota þau.“Takmarkað gildi fyrir sjúklingana Gunnar Smári segir það sorglega við lyfjaiðnaðinn vera; „að það er hann sem drífur áfram heilbrigðiskerfið. Í dag er varið um 1.100 milljónum króna til áfengis- og vímuefnalækninga (SÁÁ, Landspítali, Samhjálp og fleira) sem að mestu leyti stefna á lyfjalausan bata. Þetta er kostnaðurinn við meðferð við sjúkdómi sem er meginheilbrigðisvandi um 30 þúsund landsmanna; semsé 36.500 krónur á mann. Ef lyfjafyrirtækin koma á markað lyfi sem talið er virka á alkóhólisma myndu þessi framlög margfaldast á stuttum tíma (jafnvel þótt lyfin hefðu takmarkað gildi fyrir sjúklingana).Enginn græðir á lyfjalausum bata Formaður SÁÁ er ómyrkur í máli þegar lyfjafyrirtækin eru annars vegar. Lyfjalaus bati eins og sá sem SÁÁ stefnir á hefur þann galla að ekkert fyrirtæki græði á honum. „Þvert á móti tapa lyfjafyrirtækin og ÁTVR. Þess vegna er enginn hvati í nútímasamfélagi (sem er drifið áfram af einkahagsmunum; stjórnmálamenn og stjórnsýsla þjóna aðeins slíkum hagsmunum og hafa misst sjónar af almannahag, sem fór úr tísku á síðustu öld) til að styðja við lyfjalausan bata. Þetta sést einnig í meðferð við geðröskunum; þar vex aðeins sú meðferð sem lyfjafyrirtækin geta grætt á; önnur meðferð er að koðna niður. Og það getur vel orðið örlög bataleiðarinnar við alkóhólisma; stjórnvöld hafa verið að reyna að brjóta hana niður svo til alla þessa öld.“
Tengdar fréttir Lundbeck setur áfengispillu á markaðinn Danska lyfjafyrirtækið Lundbeck hefur sett nýtt lyf á markaðinn en það hefur þau áhrif að draga úr áfengisneyslu þess sem tekur það. 22. apríl 2013 09:23 Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Sjá meira
Lundbeck setur áfengispillu á markaðinn Danska lyfjafyrirtækið Lundbeck hefur sett nýtt lyf á markaðinn en það hefur þau áhrif að draga úr áfengisneyslu þess sem tekur það. 22. apríl 2013 09:23