Leikmaður ÍBV fékk ekki landvistarleyfi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. mars 2013 10:13 Ivana Mladenovic í leik með ÍBV í vetur. Mynd/Vilhelm
Ivana Mladenovic hefur líklega spilað sinn síðasta leik með handboltaliði ÍBV hér á landi, þar sem landvistarleyfi hennar er útrunnið. Mladenovic hefur í raun verið hér á landi sem ferðamaður en hún hefur spilað alla nítján leiki ÍBV í N1-deild kvenna til þessa og skoraði til að mynda fimm mörk þegar að ÍBV tapaði fyrir Val, 27-19, í undanúrslitum Símabikars kvenna á laugardaginn. „Hún fór úr landi í morgun," sagði Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV, við Vísi. „Við erum frekar svartsýnir á að þetta muni leysast, þó svo að við séum ekki hættir að vinna í þessum málum." Sindri segir að það hafi verið allt í senn yfirsjón, misskilningur og klúður sem búi að baki þessu máli - sem og hertari reglur hjá Vinnumálastofnun. „Ivana fór úr landi fyrir viku síðan og við reyndum þá að fá öll þessi mál á hreint, áður en kom að leiknum í bikarkeppninni. En það gekk ekki og Ivana fékk að koma aftur inn í landið til að taka saman sínar föggur." Sindri segir að Mladenovic hafi verið hér á landi undir sömu formerkjum og aðrir erlendir leikmenn liðsins undanfarin ár. „Ég er nokkuð nýr í þessu starfi en það er minn skilningur. Það eigi við um fleiri lið en ÍBV." Hann segir að handknattleiksdeild ÍBV hafi ekki gefist upp. „Við erum ekki búnir að gefa upp alla von en við erum ekki bjartsýnir."
Handbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira