Fyrsta hrefna veiðiársins skotin Birgir Þór Harðarson skrifar 10. maí 2013 06:00 53 hrefnur voru veiddar í fyrra en það annaði ekki eftirspurn. Því er ráðgert að veiða fleiri dýr í ár. Fréttablaðið/Jón Sigurður
Fyrsta hrefna ársins hefur verið veidd. Atburðurinn markar upphaf hrefnuveiðitímabilsins. Hafsteinn SK kom í land með dýrið í gærkvöldi eftir að hafa skotið það utan við svokallaða hvalaskoðunarlínu á Faxaflóa í gærdag. Hrefnuveiðitímabilið stendur í sex mánuði eftir að fyrsta dýrið hefur verið drepið. Kvótinn er 216 dýr en undanfarin ár hefur hann ekki verið fullnýttur. Gunnar Bergmann, útgerðarmaður og eigandi Hafsteins SK, segir stefnt að því að veiða 50 til 70 dýr. Í fyrra voru 53 dýr veidd og annaði það ekki eftirspurn. Að sögn Gunnars sinna tveir bátar veiðunum. "Við höfum átt nóg með að sinna innanlandsmarkaðinum miðað við þá veiði sem við höfum verið að ná undanfarin þrjú ár." Hann segir veiðina mestmegnis fara fram rétt utan hvalaskoðunarlínu, en veiðar eru bannaðar þar sem hvalaskoðunarfyrirtæki fara með viðskiptavini sína. Hrefnan sem skotin var í gær verður verkuð í dag og fer kjötið beint inn á veitingastaði og í verslanir.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira