Páll Heimisson neitaði sök 5. mars 2013 09:22 Páll Heimisson ásamt lögmanni sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun Mynd/GVA
Páll Heimisson, sem hefur verið ákærður fyrir stórfelld umboðssvik, neitaði sök við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann er grunaður um að hafa misnotað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs, meðal annars í dýrum fataverslunum, skartgripabúðum og á veitingastöðum um allan heim. Páll mætti ekki við þingfestingu málsins sem fór fram í lok janúar síðastliðinn, vegna þess að hann býr í Rúmeníu þar sem hann stundar nám. Sérstakur saksóknari gaf út ákæru á hendur honum þann 18. desember síðastliðinn. Fréttablaðið fjallaði um hana um miðjan mánuðinn en þar segir meðal annars að Páll hafi notað kortið í sextán löndum frá janúar 2009 til mars 2011. Hann ferðaðist um þrettán Evrópulönd á tímabilinu en einnig fór hann til Líbanon, New York í Bandaríkjunum og Peking, höfuðborgar Kína. Upphæðin sem hann er talinn hafa svikið út eru um nítján milljónir króna, þar af voru tólf milljónir teknar út í bönkum og hraðbönkum. Í ákærunni segir að árið 2011 virðist hann hafa hægt á sér, því þá sé notkunin á kortinu ekki nema tæpar 233 þúsund krónur á þriggja mánaða tímabili. Það ár sé ekki um neinar óheimilar úttektir á reiðufé að ræða.Kreditkortið, sem Páll hafði afnot af, var í eigu Sjálfstæðisflokksins.VísirPáll er þrítugur, fæddur árið 1982. Hann hafði verið virkur í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins og var alþjóðafulltrúi flokksins þegar hann tók við sem ritari íhaldshópsins.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Sjá meira