Erlent

Stórstjörnur á leiðinni til landsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sir Michael Gambon, Sofie Gråbøl og Stanley Tucci.
Sir Michael Gambon, Sofie Gråbøl og Stanley Tucci.
Tökur á fyrstu seríu af sjónvarpsþáttunum Fortitude munu hefjast hér á landi í febrúar á næsta ári en þættirnir eru samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum. Alls verða teknir upp þrettán þættir og fara tökur aðallega fram á Reyðarfirði og Eskifirði.

Nú hefur verið ráðið í hlutverk í þættinum og eru þrjár vel þekktar stjörnur á leiðinni til landsins til að leika í þáttunum. Sir Michael Gambon, Sofie Gråbøl og Stanley Tucci fara með aðalhlutverkin.

Tökurnar eru mjög umsvifamiklar því allar útisenur í þáttunum verða teknar á Íslandi. Af þeim sökum mun tökulið þáttanna dvelja hér á landi í margar vikur.

Serían fjallar um smábæinn Fortitude sem er talinn vera einn öruggasti bær í heimi þangað til vísindamaður í bænum er myrtur og allir liggja undir grun.

Glæpurinn setur allt á annan endann í Fortitude og enginn er óhultur. Þættirnir eiga að gerast í bæ á heimskautasvæði að vetrarlagi og því Ísland kjörstaður fyrir upptökur.

Þættirnir verða sýndir á Sky Atlantic HD og Starz á næsta ári.

Sir Michael Gambon er mest þekktur fyrir hlutverk sín í Harry Potter kvikmyndunum en þar fer hann með hlutverk Albus Dumbledore.

Sofie Gråbøl fór með aðalhlutverkið í dönsku þáttunum Forbrydelsen og Stanley Tucci hefur leikið í fjölda kvikmynda í Hollywood.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×