Hagvöxtur á mann 0% á fyrsta ársfjórðungi 7. júní 2013 11:17
Á fyrsta fjórðungi ársins var 0,8% hagvöxtur. Hefur hagvöxtur ekki mælst minni síðan á þriðja fjórðungi 2010, þ.e. síðan hagkerfið fór að taka við sér eftir samdráttinn sem varð í kjölfar bankahrunsins 2008. Ef tekið er tillit til fólksfjölgunar sem var 0,8% á sama tímabili stóð verg landsframleiðsla (VLF) í stað að raungildi á milli ára, þ.e.a.s. hagvöxtur á mann var 0,0%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að tölurnar undirstriki það sem fram hefur komið í nýlegum þjóðhagsspám, þ.e. að dregið hafi úr hagvexti og útlit er fyrir að hann verði hægur í ár „Líkt og vísbendingar voru um var mikill samdráttur í fjárfestingu á fyrsta fjórðungi, eða sem nemur 19,9%. Er þetta þriðji fjórðungurinn í röð þar sem samdráttur mælist í fjárfestingu. Þessi þróun er mikið áhyggjuefni þar sem fjárfestingarstigið í hagkerfinu var nú þegar orðið mjög lágt, en fjárfesting er grundvöllur að hagvexti til lengri tíma litið. Var fjárfesting sem hlutfall af VLF einungis 12,6% á fyrsta fjórðungi þessa árs, og hefur þetta hlutfall ekki verið lægra síðan á fyrsta fjórðungi ársins 2011,“ segir í Morgunkorninu.Þjóðarútgjöld drógust saman um 4% „Í heild drógust þjóðarútgjöld saman um 4% á fyrsta fjórðungi, og er þetta annar ársfjórðungurinn í röð sem samdráttur á sér stað í innlendri eftirspurn. Er þetta samt mesti samdráttur í þjóðarútgjöldum sem mælst hefur síðan á fyrri hluta árs 2010, þ.e. á samdráttarskeiðinu eftir hrun. Þessi mikli samdráttur í þjóðarútgjöldum endurspeglast í umtalsverðum samdrætti í innflutningi sem mældist 6,3% á fyrsta ársfjórðungi. Er það sérstaklega innflutningur fjárfestingavara sem er að dragast saman. Á móti þeim samdrætti var 2,3% vöxtur í útflutningi á fjórðungnum sem er fremur lítill vöxtur í samanburði við það sem mælst hefur að meðaltali hér á landi síðan hagkerfið fór að taka við sér árið 2010.“ Sjá hér.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira