Handbolti

Jansen skallaði Nincevic sem er líklega kinnbeinsbrotinn

Afar ljótt atvik átti sér stað í leik Hamburg og Füchse Berlin í þýska handboltanum í kvöld.

Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, missti þá algjörlega stjórn á skapi sínu undir lok leiksins og skallaði þá Króatann Ivan Nincevic, leikmann Berlin.

Nincevic lá eftir óvígur, talsvert blæddi úr honum og tók langan tíma að koma honum af velli.

Talið er að Króatinn sé kinnbeinsbrotinn enda var skallinn ansi fastur. Hann fékk einnig ljótan skurð undir augað og var nálægt því að missa meðvitund.

Dagur Sigurðsson, þjálfari Berlin, var mjög reiður eftir leikinn og reifst heiftarlega við Martin Schwalb, þjálfara Hamburg, á blaðamannafundi eftir leik.

Atvikið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×