Borgarbúar almennt ánægðir með að breyta Laugavegi í göngugötu 29. maí 2013 11:59 Sumarlokanir mælast vel fyrir hjá borgarbúum samkvæmt Gallup Capacent. Mynd /Valli
Borgarbúar eru almennt mjög ánægðir með það fyrirkomulag að hluta Laugavegs skuli breytt í sumargötu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Stuðningur íbúa við sumargötuna í þeim hverfum er næst liggja miðborginni er mjög afgerandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Reykjavíkurborg. Fleiri borgarbúar en nokkru sinni fyrr eru hlynntir því að breyta hluta Laugavegs í göngugötu yfir sumartímann. Niðurstöður viðhorfskönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar sýna að 67,9% aðspurðra eru hlynntir því að hafa göngugötu á hluta Laugavegs. Sambærileg könnun var gerð í mars - apríl 2012 og sýndu niðurstöður hennar að 63,2% aðspurðra voru hlynntir slíkum breytingum. Í könnuninni nú eru 29,8% svarenda alfarið hlynntir göngugötu á hluta Laugavegs, 27,7% mjög hlynntir og 16,3% frekar hlynntir. Aðeins lítið brot aðspurðra er alfarið andvígt breytingunum, eða 5,7%. Almenn ánægja er með sumargöturnar hjá svarendum í öllum hverfum borgarinnar. Íbúar þeirra hverfa sem næst liggja miðborginni eru þó algjörlega afgerandi í viðhorfi sínu til sumargötukaflans á Laugavegi. 41% íbúa í Miðborg og Vesturbæ eru alfarið hlynntir og 37% íbúa í Hlíðum og Laugardal. Meirihluti íbúa í öðrum hverfum borgarinnar eru þó einnig mjög hlynntir því að breyta hluta Laugavegs í sumargötu. Úrtak könnunarinnar var 1150 manns á Reykjavíkursvæðinu, 18 ára og eldri. Fjöldi svarenda var 695 og svarhlutfall því 60,4%. Sumargötur í Reykjavík verða opnaðar laugardaginn 1. júní næstkomandi.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira