XXX Rottweiler hundar frumsýna nýtt myndband 11. maí 2013 17:41 „
Lagið er sönnun á því hvernig fullkomið lýðræði virkar, það eru allir í öllu, Rottweiler er bara kommúnistasjitt,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hin goðsagnakennda rappsveit, XXX Rottweiler hundar, hefur sent frá sér nýtt lag og myndband með því. Og það er öllu tjaldað til í laginu sem heitir „Þú veist“. Erpur segir að þeir félagarnir, Erpur, Bent og Lúlli hafi samið lagið saman og tekið upp myndbandið í sameiningu að auki. Og ekki vantar reynsluna í myndbandagerðinni enda Bent einn af heilunum á bak við Steinda Jr. seríurnar og Lúlli hefur starfað hjá framleiðslufyrirtækinu Stórveldinu sem meðal annars framleiðir Týndu Kynslóðina og fleira. Myndbandið er annað í röðinni en þeir félagar stefna á plötuútgáfu. Erpur segir þá félagana raunar ekki búna að finna út hentugan vettvang til þess að gefa plötuna út, en telur ólíklegt að það verði með gamla laginu, það er að segja að platan verði gefin út á geisladisk. „Annars vill Bent bara gefa þetta,“ segir Erpur hlæjandi. Sveitin er núna komin eftir nokkuð langt hlé. Spurður hvað komi til segir Erpur að þeir félagarnir hafi einfaldlega verið í öðrum verkefnum. Sjálfur hafi hann einbeitt sér að sólóferlinum á meðan hinir hafa starfað við dagskráðgerðina. „Svo koma bara rétti tíminn,“ útskýrir Erpur. Og það er ljóst af myndbandinu að þeir félagarnir hafa engu gleymt. Þeir eru jafn harðir og fyrir um áratug síðan, það er enn þá djammað á Prikinu og hvergi slegið af. Spurður hvort þeir hafi ekkert mýkst með árunum svarar Erpur: „Við erum bara eins og svampar. Partýið er orðið miklu grimmara og við endurspeglum það. Þannig ef það verða 15 Havana flöskur í staðinn fyrir þrjár, þá verður bara að hafa það,“ segir Erpur. En sjón er sögu ríkari, myndbandið með þeim félögum má sjá hér fyrir ofan.
Tónlist Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira