"Menn mjög hræddir og fáir á ferli" Jóhannes Stefánsson skrifar 17. apríl 2013 14:15 Lögreglumaður í Boston Mynd/ AFP
Melkorka Árný Kvaran, ein þeirra 35 íslendinga sem tóku þátt í Boston maraþoninu á mánudaginn er á leið heim í kvöld ásamt manni sínum. „Ég tók þátt í hlaupinu og var komin í mark þegar þetta gerist. Sprengjan springur svona 30 - 40 mínútum eftir að ég kem í mark. Hótelið okkar er staðsett þar sem sprengjan sprakk." Melkorka var á leið aftur á hótelið þegar sprengjurnar sprungu, en hún var þá um 500 metra frá sprengingunum. "Það er endalaust hvað, ef og hefði í þessu. Hvað ef maður hefði hlaupið hægar eða hraðar og þá verið komin aftur á hótelið? Við erum búin að fara í gegnum allan tilfinningarússíbanann." Melkorka segir borgina vera allt aðra í kjölfar atburðanna. „Það er engin stemning í borginni. Það er allt hálfgerlega lamað og undirlagt." Svæðið í kringum sprengingarnar er enn allt girt af og lögregla og hermenn eru mjög víða. „Það er hert eftirlit allstaðar. Það eru lögreglumenn og hermenn með alvöru græjur fyrir utan nýja hótelið okkar." „Við erum búin að flýta heimförinni og Icelandair bjargaði okkur alveg með það. Við vorum bara fyrir klukkutíma að fá símtal um að við gætum nálgast farangurinn og vegabréfin okkar." Farangur Melkorku var fastur inni á hótelinu vegna sprengjanna en hún þurfti að fara og sækja hann annað vegna þess að hótelið var girt af.
Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Gjörólíkt gengi frá kosningum Innlent Fleiri fréttir Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sjá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Sjá meira