Kaffistofa Samhjálpar hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 17. apríl 2013 17:23 Ari Edwald afhentir hér forsvarsmönnum Kaffistofu Samhjálpar verðlaunin
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn síðdegis í dag. Þetta er í áttunda sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna. Kaffistofa Samhjálpar býður upp á mat og kaffi fyrir utangarðsfólk og aðstöðulausa og hefur verið starfrækt frá árinu 1982. Fyrstu árin var opið virka daga og á stórhátíðum. Haustið 2001 bættist svo við helgaropnun og hefur kaffistofan verið opin alla daga síðan. Að jafnaði fær kaffistofan rúmar hundrað heimsóknir á dag eða upp undir 40 þúsund á ári. Tveir starfa á kaffistofunni, sem að auki nýtur liðsinnis sjálfboðaliða. Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti fulltrúum Kaffistofu Samhjálpar verðlaunin og verðlaunafé að upphæð tólf hundruð þúsund.Aðrir sem voru útnefndir til Samfélagsverðlaunanna: Kattholt Alzeimer-kaffiHvunndagshetja Hvunndagshetja ársins er Sigurlaug Hermannsdóttir sem hefur verið ötul um árabil í félagslífinu á Blönduósi. Meðal annars býður hún ásamt manni sínum, eldri borgurum á Blönduósi til árlegrar veislu heima hjá sér.Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki: Guðmundur Stefán Gunnarsson Halldór Gunnar PálssonFrá kynslóð til kynslóðar Verðlaun í þessum flokki fær Margrét Pálmadóttir sem hefur unnið mikilsvert starf með kórum og um árabil stuðlað að söngmennt stúlkna og kvenna.Aðrir tilnefndir í þessum flokki: Félag eldri borgara á Suðurnesjum og grunnskólar í Reykjanesbæ Steindór AndersenTil atlögu gegn fordómum Projekt Polska hlýtur verðlaun fyrir atlögu gegn fordómum. Hópur ungra Pólverja vinnur að aðlögun og eflingu félagsstarfs og bættum aðstæðum innflytjenda á Íslandi.Aðrir tilnefndir í þessum flokki: ADHD-samtökin Sendiherrar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðraHeiðursverðlaun Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins hlýtur Óli H. Þórðarson Óli H. Þórðarson hefur um margra áratuga skeið verið ötull talsmaður bættrar umferðarmenningar og lagt sitt af mörkum til að fækka umferðarslysum á Íslandi.Um verðlaunin Á fjórða hundrað tilnefningar bárust frá lesendum Fréttablaðsins að þessu sinni. Markmið með Samfélagsverðlaununum er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. Þetta er í áttunda sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru sem fyrr segir tólf hundruð þúsund krónur, aðrir verðlaunahafar fengu tíu tommu United spjaldtölvu frá Tölvulistanum auk verðlaunagripa sem eru hannaðir og smíðaðir af Ásgarði, Mosfellsbæ.Dómnefnd var þannig skipuð: Arndís Þorgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttablaðsins, var formaður nefndarinnar.Aðrir: Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar og Þorsteinn J. Vilhjálmsson dagskrárgerðarmaður.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira