Vilja reisa 100 leiguíbúðir í Vatnsmýrinni Hrund Þórsdóttir skrifar 18. apríl 2013 19:11
Eigendur fasteignafélagsins S10 vilja reisa hundrað leiguíbúðir í Vatnsmýrinni og segja skilyrði fyrir byggingunum uppfyllt. Þeir undra sig á seinagangi borgarinnar í málinu en formaður borgarráðs segir lóðina sem um ræðir falla undir fyrirhugaða skipulagssamkeppni um háskólasvæðið. Deila um framtíð þessarar lóðar í Vatnsmýrinni, við Sturlugötu 8, hefur staðið í nokkur ár. Eigendur fasteignafélagsins S10 vilja byggja 100 leiguíbúðir á lóðinni en ekki hefur fengist grænt ljós á það frá Reykjavíkurborg. Árið 2008 gerðu S10 ehf og Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar samning um kaup byggingarréttar, en þá stóð til að stækka hús Íslenskrar erfðagreiningar. Borgarráð staðfesti ekki samningsgerðina og lauk málaferlum með dómssátt þar sem borgin viðurkenndi forgangsrétt S10 til lóðarinnar, með þeim fyrirvara að skipulagi Vatnsmýrar yrði lokið. Nú er á lóðinni hverfismiðstöð gatnamálastjóra en Jóhann Halldórsson, framkvæmdastjóri S10, segir að til standi að færa hana og að skipulag um Vatnsmýrina liggi fyrir. „Í kjölfar þess viljum við byggja hér íbúðarhúsnæði og við erum búin að leggja fram erindið við borgarráð þar sem við óskum eftir heimild til þess að byggja hér hundrað íbúðir." Jóhann vísar í nýleg orð Dags B. Eggertssonar, formanns borgarráðs, um þörf á leiguhúsnæði í borginni. „Við erum tilbúin og við bíðum bara eftir því að hann standi við stóru orðin og úthluti okkur þessa lóð endanlega svo hér geti hafist framkvæmdir." Dagur segir skipulagskeppni fyrir háskólasvæðið fyrirhugaða og að umrædd lóð muni falla þar undir. „Þannig að á meðan það liggur ekki fyrir, nákvæmlega hvernig skipulagið er, hefur borgin ekki viljað ráðstafa lóðinni. Og skipulagssamkeppnin á að fjalla um það, hvernig við nýtum þetta lykilsvæði í borginni best.“
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira