Fimm ára drengur rúllaði út úr bíl á ferð - kraftaverk að ekki fór verr VG skrifar 19. apríl 2013 14:37 „Ég hef líklega verið á sjötíu kílómetra hraða þegar þetta gerðist,“ segir hún en skyndilega opnast farþegahurðin og Safír Freyr rúllar út úr bílnum. „
Hann er ekki alvarlega slasaður,“ segir Nadia Tamimi sem lenti í ótrúlegum háska fyrir tveimur dögum síðan. Sjálf segist hún trúa á kraftaverk eftir reynsluna. Nadia var á leiðinni heim síðdegis á þriðjudaginn eftir að hafa farið með fimm ára gamlan son sinn, Safír Frey Jónsson og tveggja ára gamla dóttur sína, í klippingu. Hún hafði fengið bíl móður sinnar lánaðann. „Þannig ég var ekki með barnalæsinguna eins og vanalega,“ útskýrir hún. Þegar hún ók niður Ártúnsbrekkuna hafði sonur hennar losað sig úr beltinu og byrjaði að fikta í hurðinni. „Ég hef líklega verið á sjötíu kílómetra hraða þegar þetta gerðist,“ segir hún en skyndilega opnaðist farþegahurðin og Safír Freyr rúllaði út úr bílnum. Drengurinn rúllaði yfir á næstu akrein, þar sem umferðin var bæði þung og hröð. Kona á næstu akrein sá drenginn tímanlega og náði að snögghemla. „Bíllinn stoppaði bókstaflega við nefið á drengnum,“ segir Nadia sem sjálf snarstoppaði skelfingu lostin í miðri brekkunni. „Ég hljóp auðvitað út úr bílnum til stráksins. Svo sá ég að bíllinn byrjaði að rúlla niður brekkuna, þá áttaði ég mig á því að ég gleymdi að setja í park á bílnum,“ segir Nadia en tveggja ára gömul dóttir hennar sat þá í aftursætinu í bílnum, sem rúllaði stefnulaust niður Ártúnsbrekkuna. Nadia hljóp í ofboði til baka og rétt náði að setjast upp í bílinn og stoppa hann. Á sama tíma höfðu aðrir vegfarendur stoppað bíla sína, „og þau mynduðu keðju aðeins fyrir ofan til þess að koma í veg fyrir að bílar keyrðu hreinlega á okkur,“ segir Nadia sem er ótrúlega þakklát þeim sem aðstoðuð þau á þessu skelfilega augnabliki. Sjúkrabíll kom skömmu síðar og Safír Freyr var fluttur á spítala. „Hann fékk alvarlegan heilahristing og er allur bólginn og rispaður í framan,“ útskýrir Nadia en drengurinn var útskrifaður af spítalanum í dag. „Læknarnir vilja meina að hann nái sér að fullu,“ segir Nadia en bætir við að hann hafi fengið martröð í nótt, atvikið hafi haft djúpstæð áhrif á hann. „Eina orðið yfir þetta er bara kraftaverk,“ segir Nadia og bætir við að læknar hafi beinlínis verið orðlausir yfir að drengurinn hafi sloppið jafn vel og raun bar vitni. Það munaði litlu að það hefði farið verr. Og lærdómurinn er nokkuð einfaldur í huga Nadiu, „munið eftir barnalæsingunni,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira