Akureyringar verða áfram í N1 deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2013 21:05 Geir Guðmundsson. Mynd/Daníel
Akureyringar tryggðu sér áframhaldandi sæti í N1 deild karla í handbolta með fjögurra marka sigri á Aftureldingu, 29-25, í fallslag í næst síðustu umferð deildarkeppninnar en spilað var í Höllinni á Akureyri í kvöld. Afturelding var búið að vinna tvo af fimm deildarsigrum sínum í vetur á móti Akureyrarliðinu og Mosfellingar hefðu dregið norðanmenn niður í fallslaginn fyrir alvöru með sigri. Akureyringar stóðust aftur á móti pressuna og sigurinn skilar liðinu fjögurra stiga forskoti á Aftureldingu þegar liðin eiga bara einn leik eftir. Akureyringar náðu í þrígang tveggja marka forskoti í fyrri hálfleik en Mosfellingar skoruðu þrjú mörk í röð á lokakafla hálfleiksins og komast yfir í 12-13. Heimir Örn Árnason átti hinsvegar lokaorðið í fyrri hálfleiknum og staðan var 13-13 í hálfleik. Akureyringar tóku frumkvæðið í byrjun seinni hálfleiks og náðu fjögurra marka forskoti um miðjan hálfleikinn, 21-17, en Mosfellingar svöruðu þá með fjórum mörkum í röð og jöfnuðu metin í 21-21. Akureyringar voru hinsvegar sterkari á lokakaflanum og gerðu nánast út um leikinn með því að skora þrjú mörk í röð og komast yfir í 26-23 þegar sex mínútur voru eftir. Eftir það var sigurinn ekki í hættu.Akureyri - Afturelding 29-25 (13-13)Mörk Akrueyrar: Heimir Örn Árnason 11, Geir Guðmundsson 7, Guðmundur Hólmar Helgason 6, Andri Snær Stefánsson 3, Bjarni Fritzson 1, Valþór Guðrúnarson 1.Mörk Aftureldingar: Hrafn Ingvarsson 7, Birkir Benediktsson 6, Benedikt Reynir Kristinsson 5, Hilmar Stefánsson 3, Þrándur Gíslason 3, Helgi Héðinsson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Sjá meira