Bílar

Mercedes G-Class 6x6

Finnur Thorlacius skrifar
Nokkuð fágæt sjón þessi G-Class
Nokkuð fágæt sjón þessi G-Class
Er með 536 hestafla vél, 100 cm vaðdýpt og hægt er að pumpa í dekkin innanfrá.

Það er eitthvað svo venjulegt við fjórhjóladrifna bíla, hvað þá jeppa. Ef maður vill marka sér einhverja sérstöðu er meira vit í því að vera á sexhjóladrifnum bíl, ekki síst fyrir útlitið. Það finnst a.m.k. eiganda þessa Mercedes Benz jeppa sem er 536 hestafla G63 græja, bara örlítið breytt.

Bíllinn er með drifi á öllum hjólunum sex sem fá afl frá V8 vél og hann er fyrir vikið undir 6 sekúndur í hundraðið og kemst á 160 km hraða, þrátt fyrir að vega um 3,8 tonn. Aflinu er dreift milli öxlanna í hlutfallinu 30:40:30. Dekkin eru 37 tommu og þættu ekki sérlega stór í samanburði við suma af þeim breyttu jeppum sem finnast hér á landi. Auk þess eru reyndar til nokkrir bílar með drifi á 6 hjólum hérlendis.

Benz jeppinn hefur vaðgetu uppá 100 cm og hægt er að pumpa í dekkin og hleypa úr þeim innan í bílnum. Það er reyndar líka hægt í mörgum íslenskum fjallabílnum. Þeir sem gerðu breytingarnar á þessum bíl hafa ef til vill fengið góð ráð hjá íslenskum jeppamönnum, að minnsta kosti hefðu þeir lært mikið af því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×