Matur

Hollur smoothie frá Hildi

Ellý Ármanns skrifar
"Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði," sagði Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook.
"Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði," sagði Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook.

Hildur Halldórsdóttir sem heldur úti vefsíðunni Heilsudrykkir Hildar á Facebook gefur okkur gómsæta uppskrift af hollum brómberja og myntu drykk.

Brómberja og myntu smoothie (319 kcal)

9 gr prótein, 29,3 gr kolvetni, 18,5 gr fita

Mjög bragðgóður og hollur smoothie.

1,5 dl (150 ml) létt kókosmjólk (má vera rísmjólk eða léttmjólk)

1 dl grísk jógúrt

1 dl (40 gr) frosin brómber

1/2 banani, vel þroskaður og gott að hafa hann frosinn

1 tsk akasíu hunang

Nokkur laufblöð af myntu, má vera vel af henni.

Kjókosmjólkin sett í blandarann ásamt myntu, hrært vel og smakkað til. Meiri myntu bætt við ef þarf. Öðru hráefni bætt við og blandað vel.

Brómber eru mjög holl og góð. Þau innihalda t.d mikið magn andoxunarefna, eru rík af vítamínum, steinefnum og trefjum auk þess sem þau innihalda fáar hitaeiningar og lítið af kolvetnum og fitu. Þau eru talin krabbameinshamlandi, bólgueyðandi og frábær fyrir húð og augu, góð fyrir meltinguna og beinin og hjálpa til við að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Einnig finnst í þeim efni sem hjálpar til við að minnka fyrirtíðar- og breytingarskeiðseinkenni kvenna svo fátt eitt sé nefnt.


Tengdar fréttir

Borðaði bara brauð með osti í öll mál

Hildur Halldórsdóttir opnaði síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook fyrir tæpu ári. Hún gefur okkur einfalda uppskrift af heilsusafa sem er kjörinn í byrjun dags. "Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði. Borðaði bara að mestu brauð með osti í öll mál," svarar Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook. "Ég fór svo að leita að upplýsingum um holla og góða smoothie á íslensku en fann lítið af uppskriftum og líka fannst vanta næringarinnihald í þær sem ég fann en einn smoothie getur verið mjög hitaeiningaríkur. Upphaflega setti ég því síðuna upp fyrir mig til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta yrði svona vinsæl síða," segir Hildur. Grænn og vænn (304 Kcal) 11,88 gr prótein, 5,8 gr kolvetni, 4,9 gr fita Mjög bragðgóður og mjög grænn drykkur sem hentar vel sem fyrsti drykkur dagsins, um að gera að setja sem mest af spínati, það breytir hitaeiningafjöldanum lítið þar sem að spínat er svo hitaeiningasnautt. 1 frosinn, þroskaður banani 2 dl (40 gr) frosinn ananas 2 dl (40 gr) frosinn mangó 1/2 pakki af Frutein próteini, Revitalizing Green Foods Fullt af spínati, 2-3 góðar lúkur, má vera minna má vera meira. 1 msk (10 gr) hörfræ Smá ferskt, rifið engifer. Vatn eftir þörfum, ca. 3-4 dl. Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt. Sjá síðuna hennar Hildar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×