Ég elska ykkur öll Óttar Martin Norðfjörð skrifar 8. ágúst 2013 11:00 Ég vaknaði í morgun með óstjórnlega þörf til að segja ykkur svolítið: Ég elska ykkur öll. Ég elska ykkur sem eruð ósammála mér um allt, og ég elska ykkur sem eruð sammála mér um allt. Ég elska ykkur sem eruð útlensk og ég elska ykkur sem eruð íslensk; alíslensk, hálfíslensk, ¼ íslensk eða pínkulítið íslensk – ég elska ykkur öll. Ég elska ykkur sem eigið stutt eftir, ég elska ykkur sem voruð að fæðast og eigið allt lífið framundan. Ég elska ykkur sem eruð nýkomin og ykkur sem eruð nýfarin. Þið eruð öll yndisleg. Ég elska ykkur þótt þið búið í útlöndum og ég elska ykkur þótt þið búið á Íslandi, ég elska útlendinga á Íslandi og ég elska Íslendinga í útlöndum, ég elska líka útlendinga í útlöndum og Íslendinga á Íslandi, því ég elska ykkur öll. Ég elska fólkið í miðbænum og ég elska fólkið í úthverfunum og ég elska líka fólkið úti á landi og úti á sjó og alla hina sem ég er að gleyma. Ég elska kettina, hundana, kanínurnar, fuglana, hestana, beljurnar og öll hin dýrin, líka þessi sem fáir elska, eins og mávana og rotturnar og köngulærnar – ég elska ykkur öll. Og síðast en ekki síst, ég elska ykkur sem eruð öðruvísi en ég, og ég elska ykkur sem eruð alveg eins og ég. Ég elska lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transfólk sem heldur hátíð í bæ um þessar mundir. Það eru ekki sjálfsögð réttindi eins og við sjáum víða um heim. Ég get ekki sagt það nógsamlega oft, en ég ætla samt að segja það einu sinni aftur: Ég elska ykkur öll. Fleira var það ekki. Takk fyrir að lesa.Hinsegin dagar standa nú yfir. Hin árlega Gleðiganga verður haldin kl. 14 næstkomandi laugardag. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gildin sem sigldu forsetaembættinu í höfn Hugrún Sigurjónsdóttir Skoðun Gegnumlýsing - þankabrot frambjóðanda að loknu forsetakjöri Arnar Þór Jónsson Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gildin sem sigldu forsetaembættinu í höfn Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Gegnumlýsing - þankabrot frambjóðanda að loknu forsetakjöri Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason skrifar Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar skrifar Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Sjá meira
Ég vaknaði í morgun með óstjórnlega þörf til að segja ykkur svolítið: Ég elska ykkur öll. Ég elska ykkur sem eruð ósammála mér um allt, og ég elska ykkur sem eruð sammála mér um allt. Ég elska ykkur sem eruð útlensk og ég elska ykkur sem eruð íslensk; alíslensk, hálfíslensk, ¼ íslensk eða pínkulítið íslensk – ég elska ykkur öll. Ég elska ykkur sem eigið stutt eftir, ég elska ykkur sem voruð að fæðast og eigið allt lífið framundan. Ég elska ykkur sem eruð nýkomin og ykkur sem eruð nýfarin. Þið eruð öll yndisleg. Ég elska ykkur þótt þið búið í útlöndum og ég elska ykkur þótt þið búið á Íslandi, ég elska útlendinga á Íslandi og ég elska Íslendinga í útlöndum, ég elska líka útlendinga í útlöndum og Íslendinga á Íslandi, því ég elska ykkur öll. Ég elska fólkið í miðbænum og ég elska fólkið í úthverfunum og ég elska líka fólkið úti á landi og úti á sjó og alla hina sem ég er að gleyma. Ég elska kettina, hundana, kanínurnar, fuglana, hestana, beljurnar og öll hin dýrin, líka þessi sem fáir elska, eins og mávana og rotturnar og köngulærnar – ég elska ykkur öll. Og síðast en ekki síst, ég elska ykkur sem eruð öðruvísi en ég, og ég elska ykkur sem eruð alveg eins og ég. Ég elska lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transfólk sem heldur hátíð í bæ um þessar mundir. Það eru ekki sjálfsögð réttindi eins og við sjáum víða um heim. Ég get ekki sagt það nógsamlega oft, en ég ætla samt að segja það einu sinni aftur: Ég elska ykkur öll. Fleira var það ekki. Takk fyrir að lesa.Hinsegin dagar standa nú yfir. Hin árlega Gleðiganga verður haldin kl. 14 næstkomandi laugardag.
Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar