Neytendasamtökin 60 ára Jóhannes Gunnarsson skrifar 22. mars 2013 06:00 Á morgun fagna Neytendasamtökin 60 ára afmæli, en samtökin voru stofnuð 23. mars 1953. Þau eru þriðju elstu neytendasamtök í heiminum og var helsti hvatamaður að stofnun þeirra Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur. Þegar Sveinn kom heim úr námi frá Svíþjóð sá hann hve staða íslenskra neytenda var að mörgu leyti slæm. Það átti ekki síst við hvað varðar skort á neytendalöggjöf en einnig var viðhorf framleiðenda og seljenda til eðlilegra og sanngjarnra krafna neytenda neikvætt. Allt frá stofnun Neytendasamtakanna hefur langstærsti hluti starfseminnar verið fólginn í að leiðbeina neytendum um lagalegan rétt sinn í viðskiptum og aðstoða þá við að ná fram rétti sínum takist þeim það ekki sjálfum. Þessi þáttur starfseminnar er enn sá mikilvægasti. En samtökin tryggja einnig hagsmuni neytenda með ýmsum hætti, svo sem með umsögnum um lagafrumvörp, upplýsingagjöf í gegnum heimasíðuna ns.is og Neytendablaðið og áskorunum til stjórnvalda í ýmsum brýnum málum.Margt áunnist Á sex áratugum hefur sem betur fer margt áunnist og mörg dæmi eru um að barátta Neytendasamtakanna hafi borið árangur. Þannig má rifja upp þegar Neytendasamtökin söfnuðu á skömmum tíma um 20 þúsund undirskriftum þar sem þess var krafist að Grænmetisverslun landbúnaðarins yrði lögð niður og heildverslun með kartöflur yrði gefin frjáls. Þetta var gert í kjölfar þess að fluttar höfðu verið inn ónýtar kartöflur frá Finnlandi en seldar sem fyrsta flokks vara. Stjórnvöld ætluðu fyrst að þráast við en sáu að sér og gáfu þessi viðskipti frjáls og starfsemi Grænmetisverslunarinnar var lögð niður 1983.Fullur sigur Styttra er síðan Neytendasamtökin fóru í málaferli vegna samráðs olíufélaganna sem lauk með fullum sigri og þeir neytendur sem höfðu komið með kvittanir til samtakanna sem sönnuðu viðskipti þeirra á samráðstímanum fengu bætur. Þegar smálánin svokölluðu komu fram gagnrýndu samtökin harðlega þá okurvexti sem lántakendur þurfa að greiða. Með nýjum lögum um neytendalán er tekið á þessum málum og hert mjög að þessari okurlánastarfsemi.Verkefnin óþrjótandi Neytendasamtökin hafa einnig haft afskipti af fjölmörgum málum er varða matvæli og náð árangri. Þannig voru samtökin í fararbroddi fyrir því að settar yrðu reglur um merkingar á erfðabreyttum matvælum, en nú er skylt að merkja slík matvæli sérstaklega. Baráttan fyrir minni notkun á transfitusýrum skilaði sömuleiðis árangri auk þess sem samtökin kölluðu ítrekað eftir því að íslensk stjórnvöld innleiddu hollustumerkið Skráargatið. Þá má nefna að búið er að banna efnið BPA í pelum eftir að Neytendasamtökin höfðu ítrekað þá kröfu um árabil. Það er erfitt að halda úti öflugu neytendastarfi í jafn fámennu landi enda byggja samtökin að stærstum hluta á félagsgjöldum. Félagsmenn eru nú um 9.000 og er það ágætis hlutfall miðað við höfðatölu. En betur má ef duga skal. Verkefnin eru óþrjótandi og því fleiri félagsmenn því öflugri samtök. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar