Hvers virði er allt heimsins prjál? Páll Valur Björnsson skrifar 21. mars 2013 06:00 „Hvers virði er allt heimsins prjál ef það er enginn hér sem stendur kyrr er aðrir hverfa á braut. Sem vill þér jafnan vel og deilir með þér gleði og sorg þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin.“ Þessi texti Ólafs Hauks Símonarsonar er ein af perlum íslenskrar textagerðar að mínum dómi. Hann er það vegna þess hversu ótrúlega sannur hann er og kemur hann oft upp í huga mér þegar ég hugsa til þess hvernig ástandið er í okkar litla þjóðfélagi. Skortur á trausti, heiðarleika og samstöðu er svo yfirþyrmandi að manni fallast hreinlega hendur á stundum. Nú þegar þörfin á þessu þrennu er svo hrópandi, maður finnur á samtölum sínum við fólk að það vill sjá breytta tíma. Tíma þar sem grunngildin í okkar samfélagi séu höfð að leiðarljósi í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og þar fara traust og heiðarleiki fremst í flokki. Það er kunnara en frá þurfi að segja að frumskilyrði mannlegra samskipta er traustið og um leið og það dvínar fer að halla undan fæti. Og um leið og það dvínar veldur það árekstrum og deilum manna í millum og fólk missir trúna á samfélagið. Því meira traust sem ríkir á milli fólks þeim mun heilbrigðara og sanngjarnara verður samfélagið. Almenningur verður að geta treyst stjórnmálamönnum og að þeir sinni sínum störfum að alúð og umhyggju. Heiðarleiki er þeirra höfuðdyggð. Almenningur verður að finna að þegar bjátar á þá eigi þeir „vin“ í kjörnum fulltrúum á Alþingi, vin sem setur heill og hamingju þeirra í öndvegi í störfum sínum. Því eins og máltækið segir: „Sá sem fer að dæmi heiðarlegs manns bætir ekki aðeins sjálfan sig heldur heiminn sjálfan“. Seinna erindið í þessum fallega texta Ólafs Hauks er alveg jafn innihaldsríkt og það fyrra: „Hvers virði er að eignast allt í heimi hér en skorta þetta eitt sem enginn getur keypt. Hversu ríkur sem þú telst og hversu fullar hendur fjár þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin“. Sumir hafa slegið því fram að við í Bjartri framtíð séum innhaldslaust stjórnmálaafl sem vilji bara að „öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir“. Björt framtíð er frjálslyndur stjórnmálaflokkur og í frjálslyndinu felst að við viljum leita í sameiningu að góðum lausnum. Það er enginn skortur á hugmyndum um hvernig við gerum þjóðfélagið betra, það vantar viljann til að vinna saman með hagsmuni almennings í öndvegi. Við viljum í raun ekki vera eins og öll dýrin í skóginum sem gera ekki annað en að éta hvort annað. Við viljum aftur á móti gera störf Alþingis uppbyggilegri, breyta stjórnmálunum, vinna að friði í samfélaginu og tala af sanngirni við hvert annað því að þannig eflum við traust og heiðarleika. Björt framtíð vill vera vinur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar