Chuck er fimmtugur í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2013 16:45 Charles Barkley. Mynd/Nordic Photos/Getty
Hinn litríka körfuboltagoðsögn og mikli skemmtikraftur Charles Barkley heldur upp á fimmtugsafmæli sitt í dag en hann er fæddur 20. febrúar 1963 eða aðeins þremur dögum á eftir Michael Jordan sem hélt einmitt upp á fimmtugsafmælið sitt á sunnudaginn. Charles Barkley var frábær leikmaður en eftir hann lagði skóna á hilluna hefur hann verið mikið í sviðljósinu enda eftirsóttur körfuboltaspekingur sem er óhræddur að segja sína skoðanir umbúðalaust. Barkley var valinn númer fimm af Philadelphia 76ers í nýliðavalinu 1984 en þeir sem voru valdir á undan honum voru Hakeem Olajuwon (Houston Rockets), Sam Bowie (Portland Trail Blazers), Michael Jordan (Chicago Bulls) og Sam Perkins (Dallas Mavericks). Charles Barkley er þekktastur undir gælunöfnunum Chuck" eða "Sir Charles" en hann átti frábæran feril með Philadelphia 76ers (1984–1992), Phoenix Suns (1992–1996) og Houston Rockets (1996–2000). Barkley er í hópi bestu körfuboltamanna NBA-deildarinnar sem tókst aldrei að vinna titilinn eftirsótta. Barkley var valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar 1993 en hann var með 25,6 stig, 12,2 fráköst og 5,1 stoðsendingu að meðaltali í leik á sínu fyrsta tímabili með Phoenix Suns. Barkley lék alls 1073 deildarleiki í NBA og var með 22,1 stig og 11,7 fráköst að meðaltali í þeim. Hann var með 23,0 stig og 12,9 fráköst að meðaltali í 123 leikjum sínum í úrslitakeppninni. Charles Barkley vann tvö Ólympíugull með bandaríska landsliðinu (1992 og 1996) en hann var stigahæsti leikmaður Draumaliðsins á ÓL í Barcelona 1992, skoraði þá 18,0 stig í leik og nýtti 71 prósent skota sinna.
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira