Haltu áfram að borga af láninu þínu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 28. október 2012 12:42 Mynd úr safni
Lántakendur eiga í mörgum tilvikum kröfu á fjármögnunarfyrirtæki eins og Lýsingu vegna ofgreiðslna af gengistryggðum lánum segir hæstaréttarlögmaður. Fólk eigi samt sem áður að halda áfram að greiða af lánunum þar sem vanskil setji skuldara í verri stöðu. Skarphéðinn Pétursson lögmaður Borgarbyggðar sem vann mál gegn Arion banka á dögunum vegna vaxtaútreikninga sagði í fréttum okkar í gær að níu af þeim ellefu prófmálum sem leysa áttu óvissu vegna endurútreiknings gengistryggðra lána væru í raun óþörf. Hann segir ennfremur afstöðu Lýsingar órökstudda þar sem dómurinn fyrr í þessum mánuði eigi að hans mati skýrt við um bílalán líka. „Sérstaklega í tilviki Lýsingar þá er alveg ljóst að mjög mörg lán, ef þau eru endurreiknuð samkvæmt Veritas-leiðinni, leiða til kröfu, það er að segja að lántakinn á inni kröfu. Það þýðir að með þessarri afstöðu þá er Lýsing í rauninni að taka lán hjá lántakanum með því að greiða honum ekki til baka og svo getur munað verulega á vöxtum, ef lýsing nær að halda þessu í tvö ár í viðbót," segir hann. Hann segir því lántakandann því þurfa að gæta að sér og senda kröfu á lýsingu til þess að hann ávaxti sína umframgreiðslu með dráttarvöxtum. Nú þegar nálgast mánaðarmót eru margir skuldarar í vafa um hvort greiða eigi af þeim lánum sem óvissa ríkir um endurútreikninga, Skarphéðinn segir fólk eigi samt sem áður að greiða af lánunum. „Það hefur sýnt sig í þessum málum, til dæmis þessu Borgarbyggðarmáli, að það hefur ekki verið góð regla að borga ekki. Lántakandinn er aldrei í verri stöðu við að greiða enda hafa margsinnis komið fram fyrirvarar að endurgreiðsla komi ef ofgreitt hafi veirð, með því að setja lán í vanskil þá er lántakandinn að setja sig í verri stöðu," segir Skarphéðinn að lokum.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Falla frá umdeildum áformum Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira