Innlent

Töluverð skjálftavirkni á landinu

Töluverð skjálftavirkni var á landinu í gær, en aðeins þrír skjálftar mældust tvö stig eða meira, þar af tveir í Goðabungu og einn á Gjögurtá.

Veruleg virkni var í vestanverðum Vatnajökli, í Mýrdalsjökli og á sunnanverðu Reykjanesi. Svo mældust skjálftar norður um landið og út í haf. Allir urðu skjálftarnir á þekktum skjálftasvæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×